Page 1 of 1

Að leggja hring

PostPosted: Thu Aug 09, 2007 3:49 pm
by Noctiluca
Í raun er mjög einfalt að leggja hring, en svo má gera það flóknara með hinum og þessum smáatriðunum, en það er allt undir einstaklingnum komið. Hér er mjög einföld lagning á hring lýst í skrefum, svo má bæta við og taka úr til þess að aðlaga þetta að einstaklingnum.


1. Þú þarft fjögur kerti. Það skiptir í raun ekki máli hvaða litir þeir eru en það er mjög gott að nota fjóra mismunandi liti, alla fyrir hvert frumafl. Hérna fyrir neðan eru hugmyndir um hvaða liti má nota.

Vatn: Dökkblár, blár, blágrænn, aðrir bláir litir sem eiga við vatn.
Jörð: Dökkbrúnn, dökkgrænn, aðrir jarðarlitir.
Eldur: Rauður, appelsínugulur, gulur, aðrir litir sem eiga við eld.
Loft: Hvítt, ljósblátt, ljósgult, aðrir litir sem eiga við loft.

2. Komdu nú kertunum fyrir í sitthvorum hornum, ef þú getur komist að því hvar höfuðáttirnar liggja, er það mjög gott. Annars geturðu gert það sem þér finnst passa. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um í hvaða höfuðátt frumöflin eru tengd við.

Vatn Vestur
Jörð Norður
Eldur Suður
Loft Austur


Vatn Skál með vatni
Jörð Skál með sand/mold/salti
Eldur Auka kerti
Loft Reykelsi

3. Þú þarft: reykelsi og reykelsisstand, eitt auka kerti í hvaða lit sem er, eina skál með vatni í og aðra skál með sandi/mold/salti í. Þetta seturðu svo hjá kertunum sem þú notaðir til þess að tákna höfuðáttirnar og frumöflin. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hjá hvaða frumafli þú setur hvað.

4. Þegar þú hefur sett allt þetta saman skaltu standa í miðju hringsins. Svo skaltu framkvæma næstu skref. Ef þetta er fyrsta skiptið sem þú leggur hring áttu væntanlega ekki rýting né sprota, en þú getur notað eitthvað sem þér líður vel með eins og t.d. prik eða eitthvað sem þér finnst eiga við. Annars notarðu bara hendurnar.

5. Stattu fyrir framan Jörð. Bentu í áttina sem þú settir kertið með sprota/rýtingi/höndunum þínum. Svo skaltu segja áköllun fyrir Jörð. Ef þú hefur ekki skrifað áköllun sjálf/ur geturðu notað þessa:

Blessuð sé orka Jarðar, sú sem dvelur í norðri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.

6. Snúðu þér að Lofti. Gerðu það sama og fyrir ofan, en segðu:

Blessuð sé orka Lofts, því sem dvelur í austri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.

7. Snúðu þér að Eldi. Gerðu það sama og fyrir ofan, en segðu:

Blessuð sé orka Elds, hans sem dvelur í suðri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.

8. Snúðu þér að Vatni. Gerðu það sama og fyrir ofan, en segðu:

Blessuð sé orka Vatns, þess sem dvelur í vestri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.

9. Stattu aftur í miðju hringsins og bentu annað hvort beint upp eða beint niður eða hafðu hendurnar eins og þér finnst þægilegt. Segðu svo:

Blessuð sé orka Andans, þeim sem dvelur inni, vertu nú með mér, og því sem fer fram hér.

10. Núna geturðu gert það sem þú þarft að gera inni í hringnum.

PostPosted: Fri Aug 17, 2007 6:27 pm
by Noctiluca
Hæ allir.

Ég vildi bara minna á það að þetta er aðeins ein leið af mörgum til þess að leggja hring. Þetta er sú leið sem ég nota oftast, en er þó alltaf eitthvað að bæta við og breyta til.

Vildi bara taka það fram að þetta er enginn algildur sannleikur, heldur einfaldlega mín eigin leið.

? spurning

PostPosted: Tue Jun 24, 2008 1:42 pm
by Maggie May
Þar sem ég er algjer nígræðingur í þessu, þá spyr ég:
Hvað gerir fólk inn í svona hringjum? biður bænir? hugleiðir? eitthvað svoleiðis, eða erum við að tala um einhverja galdra eða? =o. Finnst þetta hljóma fallega :) langar að prufa

Re: ? spurning

PostPosted: Wed Jun 25, 2008 12:53 am
by Noctiluca
Maggie May wrote:Þar sem ég er algjer nígræðingur í þessu, þá spyr ég:
Hvað gerir fólk inn í svona hringjum? biður bænir? hugleiðir? eitthvað svoleiðis, eða erum við að tala um einhverja galdra eða? =o. Finnst þetta hljóma fallega :) langar að prufa


Besta leiðin til að læra er að spyrja ;)

Það sem við gerum inni í hringnum er mjög mismunandi. Hringurinn er lagður áður en allar stórar athafnir eru gerðar, og oft litlar líka eða hugleiðslur, galdrar ofl.

Hringurinn er lagður til þess að vernda okkur á meðan við gerum athöfn, til að hreinsa og blessa svæðið sem athöfnin fer fram í, og til þess að gefa okkur orku fyrir athöfnina.

Þú ræður algjörlega sjálf hvað er gert inni í hringnum. Ef þú ert að fara að gera litla hugleiðslu, þá þarftu ekki að fara að leggja einhvern svakalegan hring. Ef þú ert að fara að gera sterkan galdur, þá er góður og sterkur hringur mjög góður, en ekki nauðsynlegur.

Hringir geta verið missterkir eftir því hve mikla orku við leggjum í þá. Við getum búið til alveg rosalega flókinn hring ef við notum t.d. frumöflin, verndunarvætti, allskonar sem hægt má setja í hann.

Þegar þú ætlar að gera athöfn eða galdur, þá ákveðuru bara sjálf hvort þér finnist þú þurfa hring fyrir hana.

PostPosted: Tue Sep 09, 2008 4:39 pm
by Lillith
Vildi bæta við að hringir skapa líka rými þar sem hægt er að magna upp orku og hringurinn skapar þar veggi til að hægt sé að halda orkunni til þeirra athafna sem verið er að vinna. Einnig er hægt að nota hringi í athöfnum þar sem verið er að vinna með eitthvað sem er mjög sértækt og þarf þá mögulega sértæka hringi til.

Dæmi um slíkt væri hringur þar sem vinna ætti bara með samspil jarðar og elds og því eingöngu jörð og eldur kölluð inn, en elemental hreinsun framkvæmd á undan til að senda orku sem truflandi væri fyrir þessa sértæku athöfn út. Gott tæki fyrir slíkan hring finst mér til dæmis The lesser banishing ritual of the pentagram sem er Thelemísk athöfn.

Ef unnið er með einfalda hluti til að byrja með er þetta líka góð leið til að kynnast hverju elementi fyrir sig. Pósta kannski einföldu svona rituali seinna hérna inn.

PostPosted: Wed Jan 14, 2009 8:25 pm
by SvartiSauðurinn
Afsakið, ég er alveg nýr í þessu. Hvað notið þið til að gera hring, Krít? Eða er kannski ekkert notað?

PostPosted: Tue Feb 10, 2009 3:59 am
by Noctiluca
SvartiSauður,
það má nota krít, eða band, snæri eða hvað sem er - ef þú vilt. Annars þá þarf maður ekki að gera það. Það getur hjálpað þér að sjá fyrir þér svæðið og orkuna, annars er það ekkert sem verður að gera.