Page 1 of 1

Virkni Wicca Iceland sumar 2008

PostPosted: Tue Jul 22, 2008 7:21 am
by Noctiluca
Hæ allir,

eins og flestir hafa tekið eftir hef ég og síðan þar með ekki verið mjög virk síðasta mánuð og fréttabréf kom ekki út 1. júlí eins og ætlunin var.

Ástæðan er skyndilegt andlát mjög náins vinar míns og ég hef einfaldlega þurft að fresta allri sjálfboðavinnu þangað til.

Ég kem mér í þetta eins fljótt og ég get, en vildi bara láta ykkur vita að við erum ekki hætt - heldur bara í smá pásu.

PostPosted: Tue Jul 22, 2008 7:25 am
by Noctiluca
ATH - pásan á við alla liði síðunnar væntanlega, þar sem ég er ein í stjórn :P þar með taldir klúbbar ofl.

PostPosted: Thu Aug 14, 2008 2:04 pm
by lunamaat
Ég samhryggist þér vegna vinar þíns. Taktu þér endilega allan þann tíma sem þú þarft.

PostPosted: Sat Nov 08, 2008 2:27 pm
by Noctiluca
Jæja þá er ég að vakna aftur til lífsins. Nema hvað að ég er að útskrifast í desember þannig ekki búast við of mikilli virkni á síðuni næstu mánuði.

Ég hef ákveðið að setja algjöra pásu á alla klúbbastarfsemi þar sem að meðlimir klúbbanna hafa ekki verið mikið virkir og pásu á fréttabréfið, þannig þangað til eftir áramót verður þetta bara spjallvefur - ekki að það sé eitthvað að því :P

Kv. Noctiluca