Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Vantar hjálp með draum

Hér má ræða allt um heilun, t.d. litaheilun, opj (orkupunktajöfnun), kristallaheilun ofl, draumum og hugleiðslu.

Moderator: Noctiluca

Vantar hjálp með draum

Postby Kittie on Mon Mar 10, 2008 8:41 pm

Mig dreymdi köngulær sem voru dáldið stórar og með langa mjóa fætur og eitthvað dæmi á bakinu. Þær festu sig á höfuðið á fólki rétt hjá öðru eyranu og höfðu einhver furðuleg áhrif á það en stjórnuðu ekki beint fólkinu. En þar sem þær voru komu hálfgerðar blöðrur úr höfðinu á fólki nema þetta var eitur. Ég var alltaf gegt hrædd um að könguló myndi festa sig á mig og svo var ég eitthvað að reyna að sprengja þessar eiturblöðrur. Mér leið gegt illa í draumnum og hræðilega þegar ég vaknaði, enda er ég skíthrædd við köngulær.

Hefur einhver einhverja hugmynd um hvað þessi draumur gæti þýtt? Og þá sérstaklega ef einhver veit hvað það merkir að dreyma könguló því mig dreymir þær reglulega.
User avatar
Kittie
Vígslunemi
 
Posts: 14
Joined: Sun Mar 09, 2008 9:45 pm
Location: Kópavogur

:D

Postby Mona on Wed Mar 12, 2008 12:13 am

Það er mjög misjafnt hvað Draumar þýða fyrir fólk. t.d ef mig dreymir mikið í rauðum lit gæti það þýtt reiði enn hjá einhverjum öðrum Ást. Ef maður vill læra á draumana sína verður maður að vera þolinmóður. Mér finnst mjög sniðugt þegar fólk er með drauma-dagbók, og skráir niður alla draumana sínu og svo líka venjulega dagbók, þá smátt og smátt getur séð hvaða merkingu sumir draumar þínir hafa =].

Allavega, ef ég ætti að segja hvað ég héldið að draumurinn þinn þýddi þá þýðir mjög oft að dreyma Kóngulær hamingju (ótrúlegt?), svo ef þú drepur kóngulóna gæti þýtt að þú egir eftir taka þátt í einhverju og sjá eftir því.
Yfirleitt boðar ekki gott að dreyma eitur, og er ekki alveg viss í þessu tilviki, getur verið að þú þurfti að stilla skap þitt eða eitthvað þess háttar.

-Mona-
User avatar
Mona
Vígslunemi
 
Posts: 8
Joined: Tue Feb 26, 2008 6:31 pm

Postby Kittie on Wed Mar 12, 2008 6:44 pm

Takk Mona. Mig hefði aldrei dottið í hug að það að dreyma köngulær gæti verið jákvætt.

Venjulega finnst mér ekkert svo erfitt að ráða mína eigin drauma en þessi vafðist hinsvegar mikið fyrir mér. Já, ég hef oft ætlað að byrja að halda svona dagbók en svo einhvern veginn hef ég aldrei byrjað á því. Ætti kannski bara að sparka í sjálfa mig og byrja á þvi.
User avatar
Kittie
Vígslunemi
 
Posts: 14
Joined: Sun Mar 09, 2008 9:45 pm
Location: Kópavogur

Postby Noctiluca on Wed Mar 12, 2008 8:45 pm

Já veistu ég er ekki svo fróð í draumaráðningum annarra. Mínir draumar hafa oft þýðingu en þegar ég er að reyna að ráða merkinguna þá hugsa ég fyrst og fremst um upplifun og tilfinningar sem fylgja draumnum fremur en hlutina sem mig dreymir. En mér finnst það sem Mona segir vera mjög líklegt og kannski eitthvað sem þú ættir að skoða.

Og já það er frábært að eiga sér draumadagbók, ég nota fallegu stílabókina sem ég keypti frá www.urdarbrunnur.is sem draumadagbók :)
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Kittie on Thu Mar 13, 2008 12:45 pm

Já.. mér finnst einmitt mikið vit í því að skoða tilfinningarnar líka og þarna var hún mjög sterk hvað ég var hrædd og óörugg. En ég er farin að fá smá hugmynd hvað draumurinn tákni þó er ég ekki viss hvað eitur þýðir. Það eina sem stendur í minni draumráðningarbók er ef maður tekur það inn þá getur það þýtt að maður muni lenda í fjárhagsörðugleikum en ég tók það ekkert inn.
User avatar
Kittie
Vígslunemi
 
Posts: 14
Joined: Sun Mar 09, 2008 9:45 pm
Location: Kópavogur

Postby Noctiluca on Thu Mar 13, 2008 12:53 pm

Já. Ég reyni oftast að líta á hvaða merkingu í draumnum höfðu hlutirnir. T.d. hvað fannst þér um eitrið, hvernig leið þér? Mér finnst nefninlega mjög varasamt að alhæfa að eitthvað eitt þýði alltaf það sama í draumum allra manna, af því við höfum mismunandi túlkanir og nálganir á hlutunum.

Alveg eins og Mona sagði þá getur liturinn rauður þýtt reiði fyrir einni manneskju og ást fyrir annari. Eitur gæti alveg verið táknrænt fyrir eitthvað í þínu lífi, ef mig myndi dreyma eitur þá myndi ég líta á það kannski sem tákrænt fyrir andlegt eitur í mínu lífi - eitur getur átt við slæm sambönd, neikvæðar hugsanir, ofl.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Kittie on Thu Mar 13, 2008 3:15 pm

Já ég er alveg sammála þér með alhæfingarnar. Við erum öll svo ólík og því erfitt að segja að eitthvað eitt geti táknað það nákvæmlega sama fyrir alla.

Já þetta með andlegt eitur í lífi mínu meikar dáldið sens því mér hefur ekkert liðið neitt allt of frábærlega undanfarið.

Allavega, takk fyrir að hjálpa mér með þetta :) . Þessi draumur hefur nefnilega böggað mig dáldið..
User avatar
Kittie
Vígslunemi
 
Posts: 14
Joined: Sun Mar 09, 2008 9:45 pm
Location: Kópavogur

Postby Noctiluca on Thu Mar 13, 2008 6:43 pm

Það var ekkert mál :)
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Anteros on Tue Mar 25, 2008 7:19 pm

Venjulegast eru kóngulær gott tákn í draumi og eru fyrir heppni og ágóða í einhverri mynd. Hinsvegar skiptir líka máli tilfinning þín í draumi sem og blöðrurnar og eitrið sem þú lýsir.

Þær standa líka fyrir sköpunarhæfileika þína og samskipanet. Eitthvað er ekki gott þarna og eitthvað sem þú þarft að hreinsa út. Hvað það er veit ég ekki, en blöðrurnar og eitrið standa fyrir eitthvað sem þú þarft að losa úr lífi þínu, hvort svo sem það er eitthvað innra með þér eða eitthvað í samskiptum.
Anteros
Nemi
 
Posts: 28
Joined: Tue Mar 25, 2008 7:04 pm


Return to Heilun, hugleiðsla og draumar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron