En hérna eru annars (nokkrir) steinarnir mínir:
Þetta eru tveir quartz steinar, einn slípaður og einn er hrár.
Þetta er Mánasteinn (Moonstone)
Þetta eru nokkrir Amethyst steinar. Tveir hráir og tveir slípaðir. Vegna þess að þetta er tekið í webcam líta þeir út fyrir að vera dekkri en þeir eru í raun.
Þetta eru tveir Malakít steinar, einn hrár og einn slípaður.
Þetta er píramídinn minn úr Labradorít
Lítið egg úr Amethyst á silfur-standi.
Þetta er Tígrisauga
Þetta eru tveir Carnelian steinar.
Þetta er Sólarsteinn (Sunstone)
Hérna er hópmynd af öllum steinunum sem ég var að sýna ykkur.
Hérna er Amethyst cluster.
Hérna er stórt stykki af Quartz kristali.
Hérna er pendúllinn minn og leðurpokinn sem ég geymi hann í. Hann er úr ákvamarín.
Hérna er pendúllinn minn aftur.
Þetta er stytta úr einhverjum stein (ég þekki hann ekki. Hann er grænleitur og rauðleitur) og fjólublár flúorít við hliðina á styttunni.
Þetta eru nokkrir steinar í kringum gyðju styttu sem ég á. Ég man ekki hvar ég fékk þessa styttu og ég veit ekki hvort þetta á að vera einhver sérstök gyðja. Ég kalla hana gyðju styttu því að mér finnst hún vera það
Hérna er sama styttan og var áður og svo "mortar and pestle" (hvað heitir þetta á íslensku??". Þetta er úr sama stein, ef einhver kannast við ljósgrænan og rauðan stein, endilega láta vita.
Núna er sýningin búin
