Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Óþæginlegir draumar

Hér má ræða allt um heilun, t.d. litaheilun, opj (orkupunktajöfnun), kristallaheilun ofl, draumum og hugleiðslu.

Moderator: Noctiluca

Óþæginlegir draumar

Postby WolfSpirit on Tue May 27, 2008 6:26 pm

Okey, langaði bara að deila þessu með ykkur :D

Um daginn dreymdi mig að ég var frammi og svo fór ég inní herbergið mitt og þá lá lík í rúminu mínu.
Svo var eitthvað með töluna 25 sem ég man ekki alveg en mig minnir að maðurinn sem lá í rúminu mínu hafði verið dáin í 25 ár. Man ekki mjög vel hvað gerðist.

Næstu nótt dreymdi mig að ég ætti heima í öðru húsi (sem við höfum mikið verið að skoða og viljum kaupa) En það var illur andi eða eitthvað þar inni.
Svo man ég eftir að ég var inní herbergi sem var í húsinu og þar voru fullt að pyntingatækjum og blóð á veggjunum.

Sunnudagsnóttina dreymdi mig að það blæddi úr vinstra auganu mínu, og nóttina eftir dreymdi mig að ég væri að flýja eitthvað sem ég veit ekki hvað var.
Allt í einu komu fullt af býflugum. Ein stakk mig í hendina og það blæddi.
Man ekki allt mjög vel en mér líður frekar óþæginlega þegar ég vakna.
WolfSpirit
Verðandi Norn
 
Posts: 50
Joined: Sun Jul 22, 2007 6:05 pm
Location: Hafnarfjörður

Postby Anteros on Fri May 30, 2008 9:54 pm

Þetta er ekki draumur sem hefur beina táknræna merkingu. Fremur lýsir hann kringumstæðum þínum og líðan og virðist endurspegla kvíða og áhyggjur. Hann getur einnig tengst álagi og hugsanlega veikindum.

En þó að ég hafi sagt að hann hafi ekki beina táknræna merkingu þá bendir hann engu að síður til breytinga framundan hjá þér og þess að þú þarft að vera opin fyrir þeim og tilbúin að takast á við þær.

Augu tengjast viðhorfum dreymandans, skoðunum og hvernig fólk lítur á umheiminn og tilveruna, þar er eitthvað sem þú þarft að endurskoða.

Býflugur geta verið jákvætt tákn og tákna iðinn einstakling. Hinsvegar þar sem þú varst stungin er það frekar fyrir einstakling/einstaklingum sem á einhvern máta særa þig.
Anteros
Nemi
 
Posts: 28
Joined: Tue Mar 25, 2008 7:04 pm

Postby Noctiluca on Sun Jun 01, 2008 2:54 pm

Ég er sammála Anteros, þessir draumar virðast endurspegla kvíða og hræðslu. Langar þig að flytja í nýja húsið? Er það langt í burtu frá þar sem þið búið núna? Ertu kvíðin fyrir breytingum?

Ég þekki þig töluvert og veit því að það eru nokkrar breytingar á leiðinni til þín, ert að klára grunnskólann og hefja menntaskólagöngu og svoleiðis, ertu eitthvað stressuð fyrir því öllu?

Af því svona heildartilfinningin sem ég fæ úr þessu er kvíði og hræðsla við breytingar.

Ef það er stress sem er að naga þig, þá geturðu gert ýmislegt til þess að slaka á og reynt að koma í veg fyrir að vera að stressast yfir einhverjum einum hlut dögunum saman. Hugleiðslur, róandi reykelsi, kertaljós, ofl.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby WolfSpirit on Mon Jun 02, 2008 1:25 pm

öhh.. húsið er mjög flott og það er ekki langt í burtu. En það er í hverfi sem ég vil eiginlega ekki vera í :P

Ég hlakka alveg til að byrja í framhaldskóla en er kannski pínu kvíðin líka.
Það er mjög líklega bara stress að angra mig
WolfSpirit
Verðandi Norn
 
Posts: 50
Joined: Sun Jul 22, 2007 6:05 pm
Location: Hafnarfjörður


Return to Heilun, hugleiðsla og draumar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron