Sjálf keypti ég ekki þennan stokk heldur gaf mamma mín mér hann. Henni var gefið stokkurinn fyrir mörgum árum.
Spilin mín eru á spænsku, ég hef ekki glóru af hverju, en þessi sem ég sá til sölu í Hókus Pókus voru á ensku.
Þetta eru mjög skemmtileg spil, mjög litrík og myndirnar eru næstum því eins og skrípamyndir - hlutföll eru ýkt og litir ýktir. Ég er mjög hrifin af þessum stokk og nota þennan oftast þegar ég er að spá fyrir öðrum, því ég hef notað hann lengst og kann best á hann. Svo eru spilin líka þægileg í hendinni, breið en ekki of breið, og ekki of löng.
Hérna eru tvær myndir af nokkrum spilum:
Á þessari mynd eru: (Frá vinstri til hægri, byrja í efri röð svo neðri): Dauðinn, Fíflið, Veröldin, Galdramaðurinn, Sólin og Elskendurnir.
Á þessari mynd eru: (Frá vinstri til hægri, byrja í efri röð svo neðri): Réttvísi, Hófsemi, Djöfullinn, Lukkuhjólið, Turninn og Æðsta prestynja.
