Upplýsingar um gyðjur og guði egypskrar trúar. Nöfnin þeirra eru laus við íslenska stafi svo léttara sé að leita af meiri upplýsingum á netinu. Þessi þráður verður notaður sem gagnagrunnur um egypsku trúarbrögðin og hérna má setja inn upplýsingar um hitt og þetta sem tengist viðfangsefninu.
Amentet (Ament, Amentit) -
Gyðja undirheimanna, hún tekur á móti sálum þeirra látnu við Hlið Undirheimanna, sem eru í vestri.
Amun (Amun-Ra) -
,,Konungur Guðanna”. Frjósemisguð, á sér marga tákngervinga, t.d. Steingeitin er talin vera tákn hans.
Anubis -
Guð dauðans, lyfja, eitra og múmíugerð. Hann er sonur Nephthysar og stundum kallaður Anpu. Sumir segja að faðir hans hafi verið Set, sumir segja Ra. Anubis verndaði sálir þeirra látnu frá skrímslinu Ammut.
Aten -
,,Guð hinnar sýnilegu sólar”. Tákn hans er sólin, geislar hennar og ljós.
Bastet -
Frjósemisgyðja, tengd við frjósemi kvenna og fæðingu. Kraftmikil verndargyðja, dóttir Atums. Hún er táknuð sem kona með kattarhöfuð, en stundum sem ljón.
Bes -
Þekktur sem verndari fjölskyldunnar og átti að hræða í burtu djöfla og illa anda.
Haapi (Hapi) -
Einn af guðum Nílar. Frjósemisguð, guð Suðurs og Norðurs. Maður Nephthysar.
Hathor -
Gyðja himins, jarðar og undirheima. Mjög kraftmikil, vinsæl og oft tengd við Isis. Hún er kona Hórusar. Húm er líka tengd við tónlist, gleði, eyðimörk og kynferði.
Horus -
Sonur Ósírisar og Isisar, þekktur sem verndari og forfaðir allra faraóa. Tengdur við sólina, tunglið og yfirleitt táknaður sem maður með haukshöfuð.
Ihy (Ahy, Ehy, Ahi) -
The child god of music and protector of music and musicians. He is the son of Horus and Hathor. He has links with a primeval creation god.
He is shown as playing a sistrum and wearing a menit (necklace).
Isis -
Þekkt sem gyðja margra nafna og ,,Drottning guðanna”. Ein af vinsælustu egypslu gyðjunum, en lítið er samt vitað um uppruna hennar. Hún er þó mjög tengd við flest allar hinar egypsku gyðjurnar, sérstaklega Nut, Bastet og Hathor. Hún er dóttir Nut. Hún er kona og systir Ósírisar og móðir Hórusar.
Kephri -
Guð endurholdgunar og sköpunar, einnig tengdur við sólina.
Maat -
Gyðja reglu, réttlætis og sannleika.
Min -
Frjósemisguð. Guð ferðamanna og veiðara.
Mut -
Þekkt sem ,,Lafði Himins”. Móðurgyðja.
Nephthys -
Gyðja undirheimanna, kona Seths, systir Ísisar, Ósírisar og móðir Anúbisar. Verndari hinna dauðu.
Nut -
Gyðja himins og endurfæðingar, oft ákölluð við jarðarfarir.
Osiris -
Guð undirheimsins og frjósemi. Hann var drepinn af bróðir sínum Seth, en Isis (kona hans og systir) lífgaði hann við. Hann er oft táknaður sem múmía með hvíta kórónu, og oft með svart, grænt eða hvítt andlit.
Ptah -
Guð listamanna og sköpunar.
Sekhmet -
Stríðsgyðja og gyðja hefndar. Þekkt sem ,,Sú valdamikla” og ,,Lafði stríðs og erfiðleika”. Dóttir Ra.
Seth -
Guð glundroða og ruglings. Sonur Nut, bróðir Ósírisar (sem hann drap).
Shu -
Guð ljóssins og lofts. Verndari konunga og himins.
Sokar -
Einn af guðum Nekrópólisar. Táknaður sem múmía með haukshöfuð.
Taweret (Taurt, Ipy, Apet, Reret) -
Móðurgyðja og gyðja fæðingu. Kraftmikill stríðsmaður þegar það kom að djöflum og illum öflum. Táknuð sem sameining þriggja dýra; krókódíll, nashyrningur og ljón.
Tefnut -
Gyðja rigningar, hita, raka og vatns. Táknuð sem ljónynja eða með ljónshöfuð.
Thoth -
Stundum þekktur sem ,,Lávarður Heilagra Heima”. Hann er guð tunglsins, tímans, vísinda, læknisfræði, vitneskju ofl.
