Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

8 hlutir sem þú getur gert til þess að vernda Jörðina

Hér má ræða allt sem viðkemur náttúrunni og öllu sem tengist henni, bæði umhverfisvernd og einnig hvernig nýta má hluti úr náttúrunni fyrir ýmsa Wicca-iðkun.

Moderator: Noctiluca

8 hlutir sem þú getur gert til þess að vernda Jörðina

Postby Noctiluca on Thu Jan 24, 2008 4:45 pm

Litlir hlutir sem hægt er að gera til þess að vernda náttúruna:

1. Fleygja sígarettum í ruslafötur / stubbahús þar til gerð.
Ég hef þennan punkt efst af einföldum ástæðum. Rosalega margir reykja, og rosalega margir henda sígarettustubbunum sínum bara eitthvert. Ég hef margoft horft upp á Wicca-iðkendur, náttúrudýrkendurna sjálfa, henda sígarettunum sínum á jörðina eftir að hafa reykt þær. Filterinn í sígarettum er 50 ár að eyðast í náttúrunni!!!

2. Endurvinna sorp
Annar mikilvægur hlutur sem getur gert mikinn mun. Hér eru upplýsingar um endurvinnslu á vef Sorpu: http://www.sorpa.is/user/cat/list/24/6/

3. Nota umhverfisvænar hreingerningavörur
Slíkar vörur fást m.a. í Heilsuhúsinu, bæði við Skólavörðustíg og í Lágmúla. Ég hef ekki kíkt í hinar verslanirnar, en vörurnar fást eflaust þar líka.

4. Minnka sorpmagn á heimilinu
Þetta er hægt að gera með margvíslegum hætti, t.d. nota taupoka undir innkaupin en ekki plast. Taupokana má nota aftur og aftur og þeir þurfa því ekki að fara í ruslið. Einnig minnkar sorpmagnið ef maður kaupir frekar vörur í stærri umbúðum og sleppir einnota vörum, minnkar magnið af eldhúsrúllum og pappír sem notaður er á heimilinu. Nota frekar tau sem má þvo og endurnota. Annar hlutur sem er hægt að gera er að afþakka ómerktan póst, við könnumst öll við endalausu hrúgurnar af auglýsingapóst sem fara inn um lúguna okkar. Möguleikarnir eru endalausir! Hægt er að nálgast litlu gulu límmiðana sem segja "Engan ómerktan póst takk" á pósthúsum.

5. Halda lóðinni okkar, götunni og hverfinu hreinu
Þetta má gera með margvíslegum hætti. Í fyrsta lagi er okkar lóð á okkar ábyrgð, og við ættum alltaf að tína allt rusl af henni þó svo að við hentum því ekki endilega þangað. Svo er hægt að safna saman nágrönnunum í að tína sorp af götunni okkar eða jafnvel hverfinu. Hægt er að gera skemmtilegan dag úr því. Ef okkur líkar ekki við nágrannana okkar, þá er bara hægt að hóa saman einhverjum Wicca-iðkendum og kalla þetta dag Móður Jarðar og enda daginn á skemmtilegri athöfn eða hátíð! Má jafnvel gera þetta á degi Sabbatsins, til dæmis er Imbolg núna að nálgast, sem er dagur hreinleika og endurkomu vors.. Tilvalinn dagur til þess að hreinsa aðeins til!

6. Spara rafmagn
Slökkvum á ljósum og raftækjum þegar þau eru ekki í notkun. Það er algjörlega tilgangslaust að það sé kveikt á sjónvörpum, ljósum, tölvum ofl á meðan maður er í vinnunni eða skólanum. Ef við slökkvum á því sem við erum ekki að nota spörum við ekki bara orku, heldur líka peningana sem fara í rafmagnsreikninginn! Ekki nóg með það, þá eru mörg dæmi um það að eldur hafi kviknað út frá raftækjum þegar það er kveikt á þeim, t.d. lampasjónvörp og tölvur. Við spörum orku, pening og minnkum hættuna á því að það kvikni í!

7. Spara akstur
Tökum strætó, löbbum eða hjólum þegar tækifærið gefst. Þannig mengum við minna og fáum smá líkamsrækt í leiðinni!

8. Ganga í náttúruverndarsamtök/félag og læra meira
Nokkrir tenglar:
http://www.natturuverndarsamtok.is/
http://www.landvernd.is/
http://www.grasagudda.is/frettir/sida1/
http://www.umhverfisvefurinn.is/Default ... e_Rod=&qsr
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby lunamaat on Fri Feb 29, 2008 12:27 am

User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík


Return to Móðir Jörð

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron