Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Hoddmímisholt opnar

Hérna má setja inn hlekki á aðrar áhugaverðar síður.

Moderator: Noctiluca

Hoddmímisholt opnar

Postby X on Sun Dec 23, 2007 10:05 pm

Hoddmímisholt er opnað aftur, að vísu undir allt öðrum hlekk en ég setti fyrst http://nihil.is/Hoddmimisholt/ :wink:
X
Vígslunemi
 
Posts: 1
Joined: Sat Sep 01, 2007 5:50 pm

Postby 93 Kisur on Mon Jan 21, 2008 11:37 am

Veistu, ég er ekki mjög hrifin af þessari síðu.
Það allra versta er þegar höfundurinn segir:
Ég tel mig EKKI fordómafullann einstaklinga EN ég hef hinsvegar aldrei hampað sjálfum mér á þeim forsendum að "ég sýni öllum trúarbrögðum umburðarlyndi".

Ég sé ekki hvernig einhver einstaklingur sem segist ekki vera fordómafullur geti setið fyrir framan tölvuna sína og sagt hreynt og beint út að þessi trú er röng og að þessi útgáfa af þessari trú er röng!. Mér finnst dálítil þversögn í því...

Þetta er náttúrulega mitt mat :?
V.V.V.V.V.
(Vi Veri Veniversum Vivus Vici)
By the Power of the Truth, I, while living, have conquered the universe.
-J. Faust
User avatar
93 Kisur
Verðandi Norn
 
Posts: 55
Joined: Sun Oct 28, 2007 1:23 am
Location: Ísland

Postby Noctiluca on Mon Jan 21, 2008 12:08 pm

Sammála síðasta ræðumanni. Hins vegar eru fróðlegar upplýsingar þarna, og meira sem kemur, um nornafræði.

"Wicca hvað?" kaflinn finnst mér líka mjög góður þar sem ég er sammála öllu sem þar er sagt. Ég hef virðingu fyrir trú fólks og trúarbrögðum og þau mega stunda það eins og þeim sýnir, hins vegar er ég alls ekki hrifin af fluffy-yfirborðskenndu Wicca sem virðist vera í mikilli tísku hjá fólki, og þess vegna finnst mér þessi "Wicca hvað" kafli frábær á köflum og mjög nauðsynlegur í nútíma Wicca-samfélagi.

Hins vegar er ég sammála þér með það að það má finna einstaka þversagnir þarna, sérstaklega í ummælum höfunds og svo Wicca hvað? kaflanum. Það stendur skýrt í Wicca hvað? kaflanum að Wicca getur verið gott, djúpstætt og frábært trúarbragð en oft eru það iðkendurnir sem fara of grunnt í hlutina og fá á sig "heimsku"-stimpil.

Samt virðist höfundur alfarið á móti Wicca þó svo að þetta standi í þessum kafla. Einnig má bæta við að manneskjurnar sem upphaflega skrifuðu þennan kafla voru sjálf/ar nornir sem stunduðu fræði mjög svipað Wicca og skrifuðu meira að segja námskeið þar sem var hægt að læra þessa galdra ofl, sem er algjörlega það sem maður myndi kalla 101 námskeið. Auðvitað var farið dýpra í hlutina en í þessum týpisku Wicca 101 námskeiðum, og nokkrir hlutir voru kallaðir öðrum nöfnum, en í grunninn var þetta nákvæmlega það sama.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby 93 Kisur on Mon Jan 21, 2008 10:27 pm

Það hljómaði sammt svolítið hjá honum eins og að hann væri að segja að hann hefði ekkert á móti Wicca trúnni þannig séð en gaf svolítið í skin að allir sem stunda Wicca væru asnar og "fluffy-wicca", eins og þú kýst að kalla það.
En aftur á móti er málfrelsi á Íslandi og fólk má segja það sem það vill.[/i]
V.V.V.V.V.
(Vi Veri Veniversum Vivus Vici)
By the Power of the Truth, I, while living, have conquered the universe.
-J. Faust
User avatar
93 Kisur
Verðandi Norn
 
Posts: 55
Joined: Sun Oct 28, 2007 1:23 am
Location: Ísland

Postby Noctiluca on Tue Jan 22, 2008 1:47 pm

Já það getur hljómað þannig.. Æj ég veit ekki ég er að spá í að taka þennan hlekk niður. Ekki af því að textinn getur verið eitthvað móðgandi, heldur eftir að ég fór að skoða síðuna aðeins betur eftir ábendinguna frá 93 Kisur, þá tók ég eftir því að hún tilheyrir www.nihil.is, og það voru þeir sem voru að kalla þessa síðu (wicca iceland) athvarf fyrir Wicca gelgjur..

Ég ætla ekki að leyfa þeim að skíta yfir mína síðu en samt fá að auglýsa sína hér. Ég ætla að fjarlæga þennan hlekk og vona bara að eigandi síðunnar skilur mig. Hann má alveg auglýsa sína síðu hér ef hann tekur niður þessar niðrandi athugasemdir um mína síðu sem finnast annars staðar undir nihil.is
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Noctiluca on Thu Feb 07, 2008 4:45 pm

Halló allir saman, þessi þráður hefur verið opnaður á ný. Svo virðist sem um all-hallærislegan misskilning af minni hálfu hafi verið að ræða og að nihil.is sé ekki síðan sem skrifaði leiðinlega athugasemdir um mína síðu, heldur önnur síða með svipað nafn.

Þetta kemur fram í fréttum Hoddmímisholti:

http://nihil.is/Hoddmimisholt/Prof01.html

Þar sem ég hafði svona svakalega rangt fyrir mér vil ég persónulega biðja eigenda Hoddmímisholts velvirðingar og fyrirgefningar og gef að sjálfsögðu fullt leyfi mitt til þess að auglýsa síðu sína hér, enda að mínu mati klassa vefsíða þarna á ferð og ég hef ekki móðgast neitt yfir gagnrýni hans á Wicca eins og þarna kemur fram í fréttinni. Aftur á móti hef ég fagnað henni og sést það t.d. í ummælum mínum þann 21. janúar:

"Wicca hvað?" kaflinn finnst mér líka mjög góður þar sem ég er sammála öllu sem þar er sagt. Ég hef virðingu fyrir trú fólks og trúarbrögðum og þau mega stunda það eins og þeim sýnir, hins vegar er ég alls ekki hrifin af fluffy-yfirborðskenndu Wicca sem virðist vera í mikilli tísku hjá fólki, og þess vegna finnst mér þessi "Wicca hvað" kafli frábær á köflum og mjög nauðsynlegur í nútíma Wicca-samfélagi.


Ég set því hlekkinn aftur upp og vona innilega að eigandi síðunnar kíki hér og sjái þetta: Afsakið misskilningin og ég vona að þetta geri ekki Wicca Iceland að einhverjum erkióvinum Hoddmímisholts :)

Óþarfa þykir mér þó að biðja hina síðuna um að breyta um nafn, þar sem þessi misskilningur kom fram vegna samtals á milli tveggja aðila sem greinilega höfðu ruglað þessum síðum saman sem svo báru þær fréttir til mín. Ég efast stórlega um það að þessi misskilningur gerist aftur :)

Einnig vil ég koma í veg fyrir annan misskilning að við hér á Wicca Iceland erum einhverjar hörundssárar kvensur. Ef Hoddmímisholti finnst Gardnerískt Wicca vera eina raunverulega Wicca, þá er það gott og blessað og allir hafa rétt á sínum skoðunum og ég ætla mér alls ekki út í umræðu hvað Wicca er og hvað ekki. Alveg eins og ég fæ ógeð af kristnum sem rífast um hvað hin raunverulega kristni er. Mér finnst þessar umræður einfaldlega óþurfa og leiðinlegar, ekki af því að ég hef ekki einhverjar skoðanir á málinu (sem ég og hef, og gætu þær talist "róttækar") þá er það einfaldlega vegna þess að fólk af einhverjum ástæðum er ekki hæft til þess að eiga þessar umræður án þess að það lendi í rifrildi, veseni og nafnaköllunum.

Einnig vil ég bæta einu við: þó svo að einhverjir einstaklingar móðgist yfir "Wicca hvað?" kaflanum þá hefur það ekkert með síðuna sem heild að gera, þar sem hún er gerð upp af einstaklingum með mismunandi skoðanir. Aðeins ég, persónulega, sem eigandi og vefstjóri síðunnar get talað fyrir hönd hennar og eins og kemur hér áður fram þá finnst mér þessi gagnrýni frábær, uppbyggjandi og troðfull af sannleiks- og fróðleiksmolum.

Ég fagna því Hoddmímisholti en harma þennan misskilning og vona að eigandi Hoddmímisholti geti fundist þetta jafn kómískt og kjánalegt og mér þykir þetta.

Takk fyrir,
Vefstjóri
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Merkileg

Postby Domo on Tue Feb 17, 2009 2:43 pm

skrif, vægast sagt.

Get ekki annað en verið sammála þessum einstakling sem skrifar þessa síðu og þessi síða á ekki bara við um wicca heldur alla andlega iðkun fólks í þrá sinni fyrir viðurkenningu annarra og athygli hvort sem hún er neikvæð eða jákvæð.
Domo
Vígslunemi
 
Posts: 1
Joined: Tue Feb 17, 2009 2:11 pm

Postby Freetha on Thu Feb 19, 2009 6:31 pm

Persónulega á ég svolítið erfitt með new-age, fluffbunny, white-ligty, llewellin, everything-and-the-kitchen-sink, just add water, wicca dýrkendur líka.. svo ég skil þessi skrif afskaplega vel.
Freetha
Nemi
 
Posts: 36
Joined: Mon Nov 24, 2008 10:08 pm


Return to Hlekkir

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron