Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Steina-gagnagrunnur

Hér er hægt að ræða allt sem viðkemur kristöllum og steinum og notkun þeirra.

Moderator: Noctiluca

Steina-gagnagrunnur

Postby Noctiluca on Thu Dec 06, 2007 10:55 pm

STEINA-GAGNAGRUNNUR
Hérna koma inn upplýsingar um steina, ég bæti við hægt og rólega...


A

Ametyst (Amethyst): Flestir þekkja fjólubláa lit Ametysts og mjög margir tengjast þessum stein. Það er ekki skrýtið, enda hefur fjólublár lengi verið tengdur við trúarbrögð og andlega iðkun. Ametyst hjálpar okkur að skilja að það er eitthvað æðra okkur og að helstu takmarkanir okkar finnast í eigin huga. Þegar við gerum okkur grein fyrir þessu getum við komist yfir þessar takmarkanir. Ametyst er sterkur steinn fyrir þá sem vilja hugleiða, og er tengdur við þriðja augað. Steinninn getur hjálpað svefnleysi og ýtt undir góða drauma.

Akvamarín (Aquamarine): Akvamarín er sterklega tengdur við sjó og vötn og er talinn vernda okkur á höfum úti, og er því tilvalinn steinn fyrir sjómenn og aðra sæfara. Hann tengir okkur róandi áhrifum sjávar og getur dregið úr ótta, kvíða og stressi. Hann getur verið gott verkfæri í hugleiðslu þar sem hann eflir innsæi okkar. Akvamarín er yfirleitt í ljósgrænum tónum.

Á

Ákvamarín (Aquamarine): sjá Akvamarín.

B

Blóðsteinn (Bloodstone): Blóðsteinn er dökkgrænn með rauðum doppum. Á miðöldum komst sú saga á kreik að blóðsteinninn hafði orðið til við krossfestingu Krists þegar blóð hans féll á græna jörðina og þaðan fær hann nafn sitt. Steinninn er talinn geta hjálpað við hugrekki og styrk. Hann er líka talinn geta hjálpað við sár eða blæðingar, og er notaður í heilun við blóðvandamálum. Steinninn er hreinsandi og getur losað um tilfinningalegar stíflur. Hann er talinn draga úr eigingirni og hvetja mann til að setja markmið og ná þeim. Hann er andlega hreinsandi og er nýtanlegur við andlega hreinsun á umhverfi.

C

Citrín (Citrine):

D

Danburít (Danburite):

E

É

F

Flúorít (Fluorite): Flúorít finnst í ýmsum litbrigðum, frá nánast alveg tæru yfir í gult, ljósgrænt, blátt og fjólublátt. Flúorít er steinn hugans og er talinn skerpa minnið. Hann er því tilvalinn til þess að hafa með sér í vinnu eða í skóla þar sem fólk þarf að einbeita sér og vinna vel. Hann er góður í hugleiðslu og getur haft jarðtengjandi áhrif.

G

Granat (Garnet):
Granat er til í mörgum litbrigðum, en algengast og vinsælast er það í rauðu og grænu litunum.

H

I

Í

J

Jaspis (Jaspis):

K

Kvarskristall (Quartz):

L

Labradorít (Labradorite):

M

Mosaagat (Moss Agate):

N

O

Ó

P

Q

R

Ródókrosít (Rhodocrosite): Steinn sem getur hjálpað manni með ástríðu og umhyggju. Steinninn getur hjálpað manni með umburðarlyndi gagnvart öðrum og sumir segja hann einnig hjálpa með innsæi og sköpunargleði. Steinninn er einnig verndandi og getur hjálpað með ástarlífið, með því að gera mann sjálfsöruggari og því meira aðlaðandi. Hann getur líka veitt huggun og róun þegar maður hefur lent illa í ástarmálunum. Ródókrosít er rauðbleikt á litinn og stundum með hvítum röndum.

S

Sardónyx (Sardonyx):
Sardónyx var heilagur steinn Rómverja og Egypta og er verndarsteinn sem notaður er til þess að ýta undir hugrekki, orku, úthald og sköpunargleði. Hann getur hjálpað manni að viðhalda friði bæði persónulegum friði og heimilisfriði og er oft tengdur við hjónaband. Hann hjálpar manni með að tjá tilfinningar sínar á góðan hátt og er það eflaust ástæðan fyrir því að fólk segir steininn geta stuðlað að hamingjusömu hjónabandi. Sardónyx kemur í ýmsum litbrigðum en oftast er hann rauðbrúnn með ljósum og hvítum röndum, stundum næstum alveg hvítur.

Selenít (Selenite): Selenít er nefnt eftir tungl-gyðjunni Selene. Steinninn er því oft tengdur við tunglið og kvenleika. Þetta er kraftmikill steinn fyrir hugleiðslu og áruvinnu og steinninn getur líka hjálpað manni með að fá meiri yfirsýn yfir hluti og sjá heildarmyndina. Hann er góður fyrir hreinsun, andlega þróun og frið. Sumir setja selenít hér og þar um heimili sitt til að viðhalda heimilinu sem griðarstað og vernda það frá neikvæðum utanaðkomandi áhrifum. Selenít er hvítt á litinn, stundum tært.

T

U

Ú

Únakít (Unakite): Únakít er oft tengdur við fæðingu og endurfæðingu og er þess vegna notaður í athöfnum sem viðkoma frjósemi og sumir segja þetta vera einn af bestu steinunum fyrir óléttar konur til að ganga með. Hann getur hjálpað með að fá jafnvægi á tilfinningar og sjá rót vandamáls. Hann hjálpar einnig með skilning á tilfinningum sem getur stuðlað að betri heilun. Hann er notaður í göldrum til þess að ná stjórn á orku, og er góður steinn fyrir þá sem eru að ganga í gegnum sorgar- eða þunglyndistímabil.

V

X

Y

Ý

Þ

Æ

Ö
Last edited by Noctiluca on Sat Jan 26, 2008 12:06 am, edited 1 time in total.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Noctiluca on Thu Dec 06, 2007 11:06 pm

06/12/2007

Jæja þá er kominn upp steinagagnagrunnur á síðuna líka :)

Endilega, ef það er einhver sérstakur steinn sem þið viljið að ég skrifi um, þá skrifið hann bara hér og ég skal rannsaka um hann og bæta honum við á listann.

Eins og er, þá eru ekki komnir alveg hrikalega margir steinar á listann en ég bæti við eins fljótt og ég get.

Einnig, þá megiði alveg skrifa um stein og setja textann hér, og ég get þá bara sett þann texta inn í upprunalega póstinn, þá er auðveldlega hægt að fletta steinunum upp. Muniði bara að hafa enska nafnið með, þá er auðveldara að fletta þessum stein upp á veraldarvefnum eða í erlendum steinabókum.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Kristallar og steinar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron