Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Steinaæfingar

Hér er hægt að ræða allt sem viðkemur kristöllum og steinum og notkun þeirra.

Moderator: Noctiluca

Steinaæfingar

Postby Noctiluca on Sat Dec 01, 2007 10:06 pm

Hér ætla ég að setja inn nokkrar af þeim frábæru æfingum með steina sem hægt er að finna í bókinni "Látum steinana tala" eftir Guðrúnu G. Bergmann.

Þetta eru frábærar æfingar fyrir þá sem vilja vinna meira með steina og æfa sig aðeins áfram.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Noctiluca on Sat Dec 01, 2007 10:15 pm

1. Æfing = Heilunarhugleiðsla

Eftirfarandi hugleiðsluæfingu er hægt að gera til að losna við hugsanir eða hugform sem fest hafa í líkamanum.
1. Komdu þér vel fyrir í stól með beint bak og báðar fætur á gólfinu. Hugsaðu þér að þú sért jarðtengdur í gegnum iljarnar og að útfrá þeim liggi þræðir, eins og rætur, sem teygja sig um alla jörðina.
2. Taktu kristalinn sem þú hefur ákveðið að vinna með í vinstri höndina. Gott er að hugforma kristalinn fyrst með þeirri mynd að viðkomandi líkamssvæði sé alheilbrigt og með öflugt orkuflæði. Tengdu þig við ljóshringinn fyrir ofan þig og myndaðu úr honum egglaga hjúp. Faru fram á vernd í þessum ljóshjúp á meðan þú ert að hugleiða og farðu fram á að vinna í ljósinu. Skoðaðu síðan öll þau atvik sem þú telur að hafi sest að í líkamanum og þú vilt nú losna við.
3. Stundum er um að ræða ótta úr fortíð eða nútíð, eða ótta við framtíðina, stundum skömm og sektarkennd, vonbrigði, mikla reiði, ótta við að taka þátt í lífinu til fulls eða eitthvað annað, sem við höfum fest í líkama okkar.

ATH: Þetta er tekið beint úr bókinni "Látum steinana tala" eftir Guðrúnu G. Bergmann. Eins og sjá má koma fram einhver hugtök í æfingunni sem eru ekki útskýrð til fulls. Að hugforma kristalinn fyrst eins og hún segir er það sem margir myndu þekkja undir enska hugtakinu "to charge". Þetta er að fylla kristalinn með þeirri orku eða þeirri mynd að líkamssvæðið sem heldur á steininum, í þessu tilviki vinstri hendi og handleggur, sé alheilbrigður og með gott orkuflæði. Þetta opnar okkur frekar fyrir orku steinsins og gerir flæðið auðveldara. Einnig talar Guðrún um ljóshjúp sem er fyrir ofan okkur, en margir ímynda sér slíkan hjúp í orkuvinnu á borð við hugleiðslu. Til þess að ná æfingunni verður manneskjan að sjá fyrir sér ljóshúp annað hvort fyrir ofan sig eða í kringum sig því æfingin á greinilega að vera æfing með ljósið jafn mikið og kristalinn. Við erum að nota orku kristalsins og ljósið til að heila tilfinningar okkar. Mér persónulega finnst Guðrún frekar harðskeytt þegar hún segir að maður á að fara fram á vernd og fara fram á að vinna í ljósinu, en t.d. mætti breyta þessu í beiðni eða annað. Æfingin virkar best fyrir þann sem ætlar að nota hana ef manneskjan sest fyrst niður og sníður æfinguna algjörlega að sjálfum sér.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Kristallar og steinar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron