Isis var mesta gyðja Egyptalands, hún var velviljuð gyðja og móðir, og ást hennar umlauk hverja lifandi veru.
Isis var líka besta dæmið um það hvernig elskandi eiginkona og móðir ætti að vera.
Og það var útaf því að egyptanir elskuðu hana mest af öllum goðum.
Isis var lýst sem konu með hrægammshaus og sólardisk á milli tveggja horna.
Í “bók hinna dauðu” er Isis lýst sem gefanda nýs lífs og næring hinna dauðu. Hún getur líka verið ein þeirra sem dæmir hina dauðu.
Isis kenndi fólki sínu hæfileikann til að lesa og að nýta landið, hún var þekkt sem gyðja visku og meðula.
Isis varð voldugust meðal goða og gyðja í Egyptalandi í gamla heiminum.
Sólguðinn Ra, var upphaflega með mesta máttinn, en Ra var kærulaus og hugsaði ekki um þegna sína, og fólk gamla heimsins þjáðust illa undir hans stjórn.
Það var þá sem gyðjan Isis plataði Ra með því að blanda saman munnvatni hans og mold til að búa til eitraðan snák til að bíta Ra, sem þar af leiðandi olli Ra miklum þjáningum sem hún bauðst til að lækna. Á endanum þáði Ra boðið, en Isis sagði þá Ra að hún yrði að segja leyninafn hans svo lækningin myndi virka (leyninafn Ra var uppspretta valda hans yfir lífi og dauða) hann lét undan og hvíslaði því að henni.
Þegar Isis muldraði leyninafn hans meðan hún framkvæmdi galdur sinn, læknaðist Ra. En gyðjan Isis var nú með sama mátt og Ra, vald yfir hinum lifandi og hinum dauðu. Og varð fljótt öflugasta goðið sem notaði mátt sinn til að hjálpa hinum þurfandi þegnum landsins.
Ólíkt öllum öðrum gyðjum, þá eyddi Isis tíma sínum meðal fólksins í Egyptalandi, kenndi konunum hvernig ætti að mala korn, búa til brauð, spinna hör, vefja klæði og einnig hvernig ætti að temja menn nógu mikið til að búa með þeim ( sem er listgrein sem ég væri til í að kunna)
Isis gyðja tunglsins fæddi Horus, guð sólarinnar. Saman héldu þau uppi lífi og voru bjargvættar síns fólks.
Gyðjan Isis varð ástfanginn af bróður sínum Osirus, og þegar þau giftust varð Osirus fyrsti konungur jarðar. Bróðir þeirra Set varð hamslaus af afbrýði yfir völdum þeirra, þá tók hann til þess ráðs að myrða Osirus til að komast til valda.
Fornegyptar trúðu því að guðir sínir leiðbeindu og stjórnuðu öflum hugans og líkamans. Og hver guð eða gyðja hafði sitt verkefni að vernda ákveðinn líkamshluta. Líkamshlutinn sem Isis bar að vernda var lifrin.
Það er staðreynd að fyrsta kristna fólkið færði nokkra eiginleika Isisar yfir á Maríu mey. hin elskandi og verndandi móðir þá höfðaði Isis til vestrænts fólks sem var kunnugt um trúarreglu hennar.
Mynd af Isis og ungviðinu Horusi er vafalaust innblástur ógrynni af myndum af Madonnu og barni.
já, þetta er Isis í stórum dráttum, en ég vil endilega sjá greinina hjá noctiluca, það er aldrei hægt að lesa of mikið um gyðjurnar okkar
