Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

The Quabalistic Cross

Hér má ræða athafnir (rituals) og allt sem þeim viðkemur.

Moderator: Noctiluca

The Quabalistic Cross

Postby lunamaat on Tue Nov 20, 2007 3:00 am

Hvað er The Quabalistic Cross?

QC er ritual sem notað er í ceremonial galdri. Hann gerir áruna þína stöðuga, kemur jafnvægi á og styrkir einbeitinguna. Hann er notaður sem hluti af The Lesser Banishing Ritual of the Pentagram sem er aðferð við að opna hring. Þessi aðferð er notuð bæði í galdrakerfi sem heitir Enochian og Thelema. Þar sem ég hef ekki kynnst fleiri kerfum þori ég ekki að fara með það hvort þetta sé notað víðar.

Þar sem þessi æfing getur verið notuð til að koma stöðugleika á áruna og vernda mann ætti hún að vera notuð fyrir hverja hugleiðslu, "pathworking/viision questing" (og nota sálfarir, "bi-location" eða draumfarir til að ná vissu takmarki), magíska tækni og jafnvel ritúöl. Það ætti einnig að nota hana til þess að "loka" hverju því sem þú ert að gera, hjálpa til við að komast frá öðrum sviðum og víddum, jarðtengja þig og þá orku sem þú hefur náð að kalla fram á yfirvegaðan hátt.

1. Stattu beinn (eða sittu beinn), fætur saman, axlir aftur og handleggir niður með síðum. Snúðu í austur ef hægt er.

2. Andaðu nokkrum sinnum djúpt frá þindinni. Á meðan skaltu ímynda þér að þú vaxir og víkkir út í himingeiminn. Gerðu þetta þangað til þú getur séð þig standa á jörðinni með allan alheiminn umhverfis þig.

3. Með þumalfingri (andi), vísifingri (eldur) og löngutöng (jörð) hægri handar saman, snertu ennið milli og fyrir ofan augabrúnirnar. Tónaðu rólega orðið:

Ateh

og leggðu jafna áherslu á hvorn sérhljóða og ímyndaðu þér að hljóðið berist til enda veraldar. Ateh þýðir "þitt er".

4. Dragðu hendina, með fingurnar ennþá saman, niður, eins og þú dragir ljós heimsins niður og gegnum líkamann, snertu sólarplexus og tónaðu orðið:

Malkuth

sem þýðir "ríkið" og ímyndaðu þér að ljósið fari gegnum líkamann og niður gegnum fæturna, svo þú sjáir ljóssúlu sem tegyir sig frá himinhvolfinu, gegnum þig og niður í jörðina. Í OTO, sem er galdraregla, segir maður Arwaz við sólarplexus og síðan Malkuth við nárann og er sjálfvalið hvora aðferðina maður notar.

5. Færðu hendina að hægri öxl og tónaðu orðin:

Ve Geburah

sem þýðir "mátturinn" og ímyndaðu þér sprengingu ljóss sem leysir úr viðjum kristallaðan ljósstraum sem teygist endalaust til hægri.

6. Færðu hendina frá hægri öxl að vinstri öxl og ímyndaðu þér aðra sprengingu ljóss til vinstri um leið og þú tónar orðin:

Ve Gedulah

sem þýðir "dýrðin". Núna hefurðu lóðréttan straum ljóss frá himni til jarðar og annan láréttan milli axlanna sem teygist út í óendanleikann og báðir í gegnum þig.

7. Lyftu báðum höndum upp ti sínhvorra hliðanna, lófar upp. Leggðu síðan hendurnar yfir hvor aðra við hjartað. Tónaðu orðin:

Le Olam Amen

sem þýðir "að eilífu, Amen". Sjáðu þig fyrir þér sem lifandi, jafnarma kross ljóss.

8. Í lokin skaltu ímynda þér að þú hafir "andað að þér" skæra ljósinu og að þú náir venjulegri stærð.

Þegar þú tónar orðin áttu að ímynda þér að þau víbri gegnum alheiminn.
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Glaciesprocer on Sat Jan 17, 2009 6:13 pm

Í sambandi við að tóna orðin, á að gera það eitthvað visst hátt ?
Glaciesprocer
Vígslunemi
 
Posts: 4
Joined: Thu Jan 15, 2009 6:30 am

Postby lunamaat on Sun Jan 18, 2009 11:56 am

Þú átt ekki að öskra það, þetta er meira eins og milt kall eða sungið tal (á sama tóni), en með góðum raddstyrk. Vonandi skilst þetta, frekar erfitt að útskýra án hljóða.
Luna Maat
~pagan~witch~healer~
*Spiritual & energy healing
*Reiki
*Cranio Sacral Therapy (CST I)
*Magic
*Wicca/Neo-Wicca

Netfang: lunamaat (hjá) yahoo.com
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Re: The Quabalistic Cross

Postby Enoch on Sun Oct 04, 2009 11:47 pm

lunamaat wrote:Þessi aðferð er notuð bæði í galdrakerfi sem heitir Enochian og Thelema. Þar sem ég hef ekki kynnst fleiri kerfum þori ég ekki að fara með það hvort þetta sé notað víðar.


Þó að þetta sé gamall þráður þá vil ég benda á það að flest þessi ritúöl (Lesser Ritual of the Pentagram, Qabalistic Cross o.fl.) eins og við þekkjum þau í dag voru skrifuð af S.L. MacGregor Mathers fyrir Golden Dawn. Hann setti líka saman Enokíska kerfið út frá skrifum John Dee og Edward Kelley. Þessi ritúöl eru líklegast notuð víðar vegna þess að Golden Dawn lögðu grunninn að flestum helstu galdrakerfum síðustu aldar.
Radix Malorum Est Cupiditas

Víðir Alexander Jónsson
Frater Soli Deo Gloria
morrinn(hjá)gmail.com

,,Ef einhvern mann í ykkar hópi brestur visku, þá biðji hann Guð sem gefur öllum örlátlega og átölulaust og honum mun gefast.” (Jak. 1:5)
User avatar
Enoch
Vígslunemi
 
Posts: 3
Joined: Wed Dec 19, 2007 12:44 am

Re: The Quabalistic Cross

Postby lunamaat on Wed Oct 21, 2009 12:02 am

Mikið rétt
Luna Maat
~pagan~witch~healer~
*Spiritual & energy healing
*Reiki
*Cranio Sacral Therapy (CST I)
*Magic
*Wicca/Neo-Wicca

Netfang: lunamaat (hjá) yahoo.com
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík


Return to Athafnir

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron