Amethyst er andlegur steinn sem hjálpar okkur að tengjast okkar Æðra sjálfi. Hann er róandi, þægilegur steinn sem hjálpar okkur að rækta sköpunargáfu okkar og er tilvalinn í að hjálpa við hugleiðslu.
Hann er steinn andlegs krafts og er tengdur við skyggnigáfu, berdreymni og þriðja augað. Að ganga með Amethyst skartgripi getur hjálpað við órólegheit og kvíða. Steinninn ýtir undir hæfileika og styrki þanns sem gengur með hann og hjálpar við ótta og styrkir innsæi.
Amethyst er komið frá Gríska orðinu “amethystos” (αμέθυστος) sem þýðir “ekki fullur”. Steinninn er tilvalinn í að hjálpa við að berjast gegn fíknum, eins og t.d. áfengi. Grikkir og Rómverjar bjuggu til áfengisílát úr Amethyst, eða settu Amethyst ofan í áfengisílöt, til þess að koma í veg fyrir ofurölvun.
Amethyst er talinn vera gæddur verndarkröftum og getur hjálpað þeim sem nota/ganga með Amethyst að safna að sér jákvæðri orku og verja sig frá neikvæðri orku. Þetta er góður steinn til þess að hjálpa við sorg.
Hann ýtir undir andlegt og tilfinningalegt jafnvægi, þetta er steinn friðar, ástar, jafnvægis og heilunar. Hann er mikið notaður í heilun, t.d. orkupunktaheilun (chakra healing). Hann er tengdur við 6. orkustöðina, ennisstöðina eða “Þriðja Augað”. Hann er einnig tengdur við 7. orkustöðina, hvirfilsstöðina.
Hann er sterklega tengdur við góðan svefn og góða drauma. Hann getur varið gegn martröðum og séð fyrir góðum draumum.
Fjólublái litur steinsins hefur ávallt tengt hann við andlega hluti og hann hefur verið notaður í margt sem tengist því, t.d. er hann einnig þekktur sem “Steinn Biskupsins”, því að kaþólskir biskupar ganga með Amethyst hringi sem tengja þá æðri mátti, eða Guði.
Amethyst er tengdur við frumefnið Vatn og er mjög þægilegur steinn fyrir þau stjörnumerki sem eru í því frumefni (Krabbi, Sporðdreki og Fiskur).
