Halló allir saman, þessi þráður hefur verið opnaður á ný. Svo virðist sem um all-hallærislegan misskilning af minni hálfu hafi verið að ræða og að nihil.is sé ekki síðan sem skrifaði leiðinlega athugasemdir um mína síðu, heldur önnur síða með svipað nafn.
Þetta kemur fram í fréttum Hoddmímisholti:
http://nihil.is/Hoddmimisholt/Prof01.html
Þar sem ég hafði svona svakalega rangt fyrir mér vil ég persónulega biðja eigenda Hoddmímisholts velvirðingar og fyrirgefningar og gef að sjálfsögðu fullt leyfi mitt til þess að auglýsa síðu sína hér, enda að mínu mati klassa vefsíða þarna á ferð og ég hef ekki móðgast neitt yfir gagnrýni hans á Wicca eins og þarna kemur fram í fréttinni. Aftur á móti hef ég fagnað henni og sést það t.d. í ummælum mínum þann 21. janúar:
"Wicca hvað?" kaflinn finnst mér líka mjög góður þar sem ég er sammála öllu sem þar er sagt. Ég hef virðingu fyrir trú fólks og trúarbrögðum og þau mega stunda það eins og þeim sýnir, hins vegar er ég alls ekki hrifin af fluffy-yfirborðskenndu Wicca sem virðist vera í mikilli tísku hjá fólki, og þess vegna finnst mér þessi "Wicca hvað" kafli frábær á köflum og mjög nauðsynlegur í nútíma Wicca-samfélagi.
Ég set því hlekkinn aftur upp og vona innilega að eigandi síðunnar kíki hér og sjái þetta: Afsakið misskilningin og ég vona að þetta geri ekki Wicca Iceland að einhverjum erkióvinum Hoddmímisholts
Óþarfa þykir mér þó að biðja hina síðuna um að breyta um nafn, þar sem þessi misskilningur kom fram vegna samtals á milli tveggja aðila sem greinilega höfðu ruglað þessum síðum saman sem svo báru þær fréttir til mín. Ég efast stórlega um það að þessi misskilningur gerist aftur
Einnig vil ég koma í veg fyrir annan misskilning að við hér á Wicca Iceland erum einhverjar hörundssárar kvensur. Ef Hoddmímisholti finnst Gardnerískt Wicca vera eina raunverulega Wicca, þá er það gott og blessað og allir hafa rétt á sínum skoðunum og ég ætla mér alls ekki út í umræðu hvað Wicca er og hvað ekki. Alveg eins og ég fæ ógeð af kristnum sem rífast um hvað hin raunverulega kristni er. Mér finnst þessar umræður einfaldlega óþurfa og leiðinlegar, ekki af því að ég hef ekki einhverjar skoðanir á málinu (sem ég og hef, og gætu þær talist "róttækar") þá er það einfaldlega vegna þess að fólk af einhverjum ástæðum er ekki hæft til þess að eiga þessar umræður án þess að það lendi í rifrildi, veseni og nafnaköllunum.
Einnig vil ég bæta einu við: þó svo að einhverjir einstaklingar móðgist yfir "Wicca hvað?" kaflanum þá hefur það ekkert með síðuna sem heild að gera, þar sem hún er gerð upp af einstaklingum með mismunandi skoðanir. Aðeins ég, persónulega, sem eigandi og vefstjóri síðunnar get talað fyrir hönd hennar og eins og kemur hér áður fram þá finnst mér þessi gagnrýni frábær, uppbyggjandi og troðfull af sannleiks- og fróðleiksmolum.
Ég fagna því Hoddmímisholti en harma þennan misskilning og vona að eigandi Hoddmímisholti geti fundist þetta jafn kómískt og kjánalegt og mér þykir þetta.
Takk fyrir,
Vefstjóri