Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Að hefðja galdraiðkun

Hér er hægt að ræða almenna dulspeki, galdra, tákn, o.fl.

Moderators: Noctiluca, WolfSpirit

Að hefðja galdraiðkun

Postby lunamaat on Tue Nov 20, 2007 3:21 am

Galdur er ekta. Hann hefur áhrif á raunveruleikann. Hann er ekkert grín og ætti ekki að vera tekið af léttúð. Maður á aldrei að leika sér að galdri fyrr en maður veit virkilega hvað maður er að gera. Galdur er verkfæri, tvíeggja sverð. Hann truflar orkuflæðið í alheiminum svo því er best að geyma hann fyrir eitthvað mikilvægt.

Eins og í öllu öðru getur þú fengið eins mikið út úr galdri og þú leggur í hann. Það tekur mikinn tíma og námsiðkun til að verða leikinn í honum. Vertu raunsær í markmiðum þínum. Galdur er ekki rétta svarið við öllum kringumstæðum svo það er mikilvægt að geta áttað sig á því hvenær betra er að leita til laganna varða, lækna eða annara sérfræðinga. Vertu sanngjarn. Ef t.d. einhverjum blæðir skaltu fyrst búa um sárið og kalla á hjálp áður en þú einu sinni hugsar um að stöðva blæðinguna (stemma blóð) með galdri. Annað væri einfaldlega kjánalegt.

Galdur er í rauninni frekar eðlilegur, ekki yfirnáttúrulegur. Myndin The Secret talar um einmitt það. Eðlisfræðingar hafa uppgötvað að atóm (efnið sem við erum búin til úr) geta breytt um hreyfingar svo að þú getur umbreytt hlut með vissum aðferðum. Þannig, á vissan hátt, virkar galdur. Að framkalla árangursríka töfraþulu er ekki það sem hann snýst um. Þitt aðalmarkmið ætti að vera að rannsaka lífið sjálft sem yfirnáttúrulegan hlut.

Galdur er mjög máttugur, en maður ætti aldrei að reyna að ná valdi yfir öðrum með honum. Ef það er það sem þú ert að leita að hefur þú algjörlega misskilið tilganginn. Galdur ætti ekki að vera notaður til að knýja fram ást eða hlýðni og hann er ekki til að eyða óvinum þínum. Þess vegna ætti fólk frekar að læra galdur upp á eigin spýtur en að leita til annarra norna eftir aðstoð (þó það sé auðvitað allt í lagi að fá ráð). Galdur er ætlaður til að auka mátt þinn. Hann er til ummyndunar, heilunar og betrumbætunar. Þú notar hann til að bæta sjálfan þig og setja þér markmið. Vald yfir yfir sjálfum þér og þínu lífi er raunverulegur máttur, raunverulegt vald. Notaðu galdur til að breyta lífi þínu. Berstu gegn hinu slæma í því og sjálfum þér: ótta, ávana, sjúkdómum og neikvæðum fyrirmyndum.

Galdur er hömlulaus í því formi sem hann er. Sumar gerðir galdurs innihalda: hnútagaldur, eldhúsgaldur, garðyrkjugaldur, veðurgaldur, handagaldur, kertagaldur, söngvagaldur, gyðjugaldur, mánagaldur, sólargaldur, kristalla- og steinagaldur, drekagaldur, sjávargaldur, eldgaldur, andasæringar o.s.frv., eins margar gerðir og norn getur ímyndað sér.

Þekking er máttur, svo að töframáttur fellur undir námsiðkun, reynslu, æfingu og vinnu á þínu innra sjálfi. Þú skalt aldrei reyna að sanna mátt þinn fyrir einhverjum öðrum. Ekki láta draga þig í einhverjar hlægilegar keppnir um „meiri mátt“ við aðrar nornir. Sá eini sem þú þarft að sanna eitthvað fyrir ert þú sjálfur.

Þú getur lært galdur upp á eigin spýtur, frá bókum og vefsíðum (sem ætti þó alltaf að taka með fyrirvara). Það er ekki nauðsynlegt að hafa kennara, en þú getur leitað að slíkum ef þig langar. Þú getur æft þig einn eða þú getur leitað að fólki til að æfa þig með. Valið um að vinna einn eða í nornasveim er þitt. Fylgdu hjartanu og ekki leyfa neinum að hafa áhrif á þig í þeim efnum. Ef þú telur þig þurfa hjálp skaltu hafa það í huga að sagt er að þegar þú ert tilbúinn muni kennari eða sveimur koma.
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Sekhmet on Thu Mar 06, 2008 10:10 am

Ef mann langaði til að prófa galdra, hvaða bókum eða vefsíðum er mælt með fyrir algera byrjendur?
Og er hægt að byrja að kynna sér galdra og prófa sig áfram með þá þótt maður sé ekki farinn að trúa á gyðjurnar og Móður Jörð?

Kveðja,
Sekhmet
Sekhmet
Vígslunemi
 
Posts: 5
Joined: Fri Sep 21, 2007 2:55 pm

Postby Noctiluca on Thu Mar 06, 2008 4:51 pm

Galdrar eru algjörlega óháðir trúarbrögðum, og eru einhverskonar fylgihlutur við Wicca, þannig já þú getur galdrað án þess að trúa á Gyðjuna, Guðinn og "Móðir Jörð" (Gyðjan+Guðinn=Jörðin).

Í sambandi við bækur og vefsíður þá ætla ég að svara seinna í dag því ég þarf að fara núna.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby kvennsnift on Mon Jan 05, 2009 1:18 am

ég veit að þessi þráður er gamall, en ég hef áhuga á göldum og vantar einmitt svona upplýsingar,, þannig að ef þið vitið um einhverja bók eða þræði þá endilega sendið mér :D
með kveðju..
kvennsnift
kvennsnift
Nemi
 
Posts: 18
Joined: Sun Jan 04, 2009 11:53 pm
Location: mosó

Postby Freetha on Mon Jan 05, 2009 11:27 am

Ein af þeim bókum sem mig langar alltaf að nefna þegar fólk spyr svona er "the psychic vampire codex" aðallega útaf því hvernig orka og meðhöndlun hennar er sett fram í þeirri bók. En það er þannig sem ég sé galdur, sem beining og beiting á "orku".
Freetha
Nemi
 
Posts: 36
Joined: Mon Nov 24, 2008 10:08 pm

Postby lunamaat on Mon Jan 05, 2009 3:17 pm

Það er rosalega gott að læra heilun og að læra að vinna með orku almennt til þess að skilja betur virkni hennar í tengslum við galdur. Bækur um svoleiðis eru oft ágætar. Ég hef reyndar aldrei lesið Psychic Vampire Codex, en það er forvitnilegt að kíkja á hana.

Því meira sem þú vinnur með orku því betur lærir þú að skynja hana og stjórna henni. Byrjaðu þó á því að lesa þér til og á skynjunaræfingum. Það er alltaf erfitt að vinna með eitthvað sem þú finnur lítið eða ekkert fyrir svo það skiptir máli að byrja á grunnatriðunum. Gangi þér vel!
Luna Maat
~pagan~witch~healer~
*Spiritual & energy healing
*Reiki
*Cranio Sacral Therapy (CST I)
*Magic
*Wicca/Neo-Wicca

Netfang: lunamaat (hjá) yahoo.com
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Freetha on Mon Jan 05, 2009 7:22 pm

lunamaat wrote:Ég hef reyndar aldrei lesið Psychic Vampire Codex, en það er forvitnilegt að kíkja á hana.

Það sem gerir þá bók extra skemmtilega til að beina á þegar maður er aðspurður er náttúrulega líka það að það er ein besta bókin til að útskýra þetta með orkukerfi og orkuþörf einstaklinga og hvað psychic vampires "eru" en ekki bara hvernig maður setur upp skildi milli sín og þeirra. (Hvað, hvernig, hvers vegna, og svoleiðis, ekki bara "shielding 101".)
Freetha
Nemi
 
Posts: 36
Joined: Mon Nov 24, 2008 10:08 pm

Postby kvennsnift on Mon Jan 05, 2009 8:00 pm

lunamaat wrote: Byrjaðu þó á því að lesa þér til og á skynjunaræfingum.


hvar get ég fundið skynjunaræfingar?
með kveðju..
kvennsnift
kvennsnift
Nemi
 
Posts: 18
Joined: Sun Jan 04, 2009 11:53 pm
Location: mosó

Postby lunamaat on Tue Jan 06, 2009 3:23 pm

T.d. hérna í Dulspeki og galdrar er önnur grein sem heitir Nokkrar æfingar í að vinna með orku. Þær eru einfaldar og þægilegar en kenna manni samt margt og eru ágætis byrjun.
Luna Maat
~pagan~witch~healer~
*Spiritual & energy healing
*Reiki
*Cranio Sacral Therapy (CST I)
*Magic
*Wicca/Neo-Wicca

Netfang: lunamaat (hjá) yahoo.com
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby kvennsnift on Tue Jan 06, 2009 6:57 pm

já okei..
takk fyrir þetta :D
með kveðju..
kvennsnift
kvennsnift
Nemi
 
Posts: 18
Joined: Sun Jan 04, 2009 11:53 pm
Location: mosó


Return to Dulspeki og galdrar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest

cron