Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Rajayoga ( Máttaryoga ) ÉG ER !

Hér er hægt að ræða trúarbrögð og önnur andleg málefni.

Moderator: Noctiluca

Rajayoga ( Máttaryoga ) ÉG ER !

Postby ANDI on Mon Jan 05, 2009 12:09 pm

RAJAYOGA ( Máttaryoga – Konungsyoga )

Kjarni Rajayoga er hvernig hægt er að þroska andlegu öflin, hvernig vitund mannsins, hugsunina og viljann, má temja svo, að
úr verði ótakmörkuð orkumiðstöð, sem er fær um að hafa áhrif á efnisheiminn og jafnvel stjórna honum að vilja sínum.


Margir álíta að þetta séu t.d. fræðin sem Jesús Kristur nam og lærði og ef ég vitna í hann þá sagði hann meðal annars : “ Einn líkami – Einn Andi , Ég og faðirinn erum eitt, Ég er mátturinn og dýrðin að eilífu, amen . Þess vegna kalla margir þetta Kristsyoga.

En ég ætla að birta smá kafla úr Rajayoga ...


Yoginn, sem hefur vald á hug sínum
og hefur sökkt sér niður í samvitund með
innsta eðli sínu, er líkur kyndli, sem logar
stillt, þar sem enginn gustur er .....


Vitundarvakning

Þegar Indverskir nýnemar í Rajayoga koma til meistara sinna,fjalla fyrstu fræðastundirnar um eðli RAUNVERULEGS SJÁLFS og hvernig nota megi sér dulþekkingu til að gera sér grein fyrir og þróa hið raunverulega ,,ÉG” sem býr með hverjum manni. Nýnemum er þá gerð grein fyrir því, hvernig þeir geta sigrast á villukenndri og ófullkominni þekkingu á raunverulegu sjálfi sínu. Neminn fær ekki frekari fræðslu fyrr en hann hefur þetta á valdi sínu eða gerir sér að minnsta kosti fulla grein fyrir þessum sannindum. Álitið er að hann geti ekki gert sér meðvitaða grein fyrir raunverulegu sjálfi sínu, né heldur fundið fyrir viljakraftinum innra með sér, fyrr en hann hefur öðlast skilning á þessari máttaruppsprettu, sem er undirstaða allrar fræðslu um Rajayoga.

En Yogameistarar eru ekki ánægðir með að neminn geri sér aðeins vitsmunalega grein fyrir hinu raunverulega sjálfi heldur fara þeir fram á að hann jafntframt finni fyrir þessum sannindum – hann þarf að verða var við hið raunverulega sjálf – og þessi vitund þarf beinlínis að verða þáttur í daglegu lífi nemans og þar með hin ráðandi hugmynd, sem allar aðrar hugsanir hans og gjörðir byggjast á.

Sumir nemar gera sér grein fyrir þessu sem í leiftursýn jafnskjótt og þeir beina athyglinni að því, en aðrir þurfa og finnst nauðsynlegt að stunda strangar æfingar áður en þeir hafa öðlast þessa tilfinningu.

Yogameistarar kenna að um sé að ræða tvö stig í vitundarvakningunni um hið raunverulega sjálf. Hið fyrra nefna þeir ,, vitundina um ÉG-IД en með því er átt við það, þegar neminn verður meðvitaður um raunverulega tilveru sína og veit að hann er raunveruleg lífseining sem lifir sjálfstætt án tillits til líkamans og heldur því áfram að lifa, þegar hann eyðileggst – og þá hinu raunverulega lífi.

Annað stig nefna þeir ,,vitundina um að ÉG ER” – vitundina um einingu sjálfsins og Alheimslífsins og vitundina um að maður er í snertingu við allt líf hvort sem það myndbirtist eða ekki. Þessi tvö vitundarstig hljóta að verða öllum ljós sem leitast við að ganga á VEGINUM. Sumum birtast þau skyndilega, öðrum smám saman, en margir leita sér aðstoðar með því að stunda Rajayoga .


Vitundin um ÉG-IÐ

KJARNI FYRSTU fræðastundar YOGAMEISTARANNA sem miðar að því að nemar nái fyrra stiginu sem hér var greint frá, hljóða á þessa leið: Æðsta vitsmunavera alheimsins – HIÐ ALGJÖRA – hefur myndbirt óteljandi lífsform í alheiminum, þar með taldar fjarlægar veraldir, sólir, reikistjörnur o.s.frv. Mörg þeirra lífsforma þekkjum við ekki einu sinni hér á þessari plánetu og venjulegir menn geta ekki hugsað sér neitt líkt þeim. Í þessum Fræðastundum fjalla ég ekki um þá heimspeki sem snertir allan þennan aragrúa lífsforma, fremur held ég mér við myndbirtingu um þróun mannshugarins, hið sanna eðli hans og mátt. Áður en maðurinn ætlar sér að kanna leyndardóma alheimsins utan sjálfs sín, þarf hann að ná valdi yfir innri alheimi sínum – Konungsríki Sjálfsins. Þegar honum hefur tekist það, gæti hann síðan og ætti að ganga fram og afla sér ytri þekkingar eins og meistari sem krefst þess að kynnast æðstu leyndardómum, en láta sér ekki lynda að vera eins og betlari sem þiggur aðeins leifar af annarra borði. EN fyrsta þekking nemans ætti að vera þekking hans á sínu eigin SJÁLFI.

Maðurinn, æðsta myndbirting HINS ALGJÖRA á þessari reikistjörnu er undursamlega gerð vera – enda þótt venjulegur meðalmaður skilji aðeins brot af raunverulegu eðli sínu. Í líkamlegu og andlegu gervi sínu hefur hann fólgið bæði það æðsta og lægsta . Í beinum hans má í sannleika segja að myndbirtist steinaríkið, því að í beinum, líkama og blóði, eru raunverulega steinefni. Líkamsstarfsemin líkist jafnvel lífi jurtarinnar og margar líkamlegar langanir og hvatir líkjast því sem fram kemur hjá lægri dýrum. Hjá vanþroskuðum manni eru þessar langanir og hvatir ríkjandi og taka völdin af æðra eðli sem er þá mjög dulið. En loks býr maðurinn yfir hugrænum eiginleikum sem óþekktir eru meðal lægri dýra. Og í viðbót við þessa hugrænu eiginleika sem sameiginlegir eru öllum mönnum eða réttara sagt koma í ljós í meira eða minna mæli hjá öllum mönnum, eru enn æðri duldir eiginleikar innra með manninum og hefja hann yfir meðalmanninn, ef þeir birtast og koma í ljós. Allir sem náð hafa vissu stigi á þróunarbrautinni geta þróað þessa duldu hæfileika og löngun nemans í fræðslu kemur fram vegna þrýstings frá þeim til að brjótast fram í vitundina. Þá kemur að þessum dásamlega eiginleika, VILJANUM, sem menn gera sér litla grein fyrir, ef þeir eru ekki kunnir Yogaheimspeki – MÆTTI SJÁLFSINS – og fæðingarrétti þess sem það hlaut frá hinu ALGJÖRA. En þótt hinir hugrænu og líkamlegu hæfileikar séu eiginlegir manninum þá eru þeir ekki maðurinn. Áður en hann nær tökum á þessum eiginleikum – þessum verkfærum sínum og tækjum – verður hann að vakna og gera sér grein fyrir SJÁLFUM SÉR. Hann verður að geta greint á milli ,, ÉG “ og ,, EKKI ÉG “ . Þetta er fyrsta verkefni nemans.


Hið raunverulega sjálf

Hið RAUNVERULEGA SJÁLF mannsins er GUÐDÓMSNEISTINN frá Bálinu Helga. Hann er þannig barn hinna guðdómlegu foreldra. Hann er ódauðlegur – eilífur – óeyðanlegur – ósigrandi. Hann ber í sér mátt, visku og raunveruleika. En eins og barnið er vísir mannsins, þá ber mannshugurinn í sér, án þess að vita af því. dulda og máttuga eiginleika. En þegar hann vaknar upp og fer að kynnast eigin eðli, birtast hæfileikarnir og hann gerir sér grein fyrir að þetta er gjöf frá HINU ALGJÖRA. Þegar hið RAUNVERULEGA SJÁLF fer að rumska, losar það sig við alla ,,fylgihluti”, þetta sem það hélt í svefnrofunum að væri það sjálft. Að losna við þetta sem er ,,EKKI ÉG “ gerir sjálfið raunverulega frjálst. Síðan snýr það sér að þessum ,,fylgihlutum” og notfærir sér þá. Þegar við veltum fyrir okkur spurningunni : ,,Hvert er hið RAUNVERULEGA SJÁLF ?” skulum við fyrst athuga hvað menn meina yfirleitt þegar þeir segja ÉG. Óæðri dýr búa ekki yfir þessari ÉG – tilfinningu. Þau eru sér meðvituð um ytri veröld,langanir sína og dýrslegar þarfir og tilfinningar. En vitund þeirra er ekki sjálfsvitund. Þau geta ekki hugsað sér sig sem einingu aðskilda frá öðru og ekki velt neinu fyrir sér í huganum. Þau hafa enga vitund um guðdómsneista, þannig skortir þau ÉG-IÐ eða hið raunverulega sjálf. Í óæðri lífsformum er guðdómsneistinn dulinn jafnvel líka í frumstæðustu mönnum. Margfaldur hjúpur hylur ljós hans. En samt sem áður er hann þar alltaf undir niðri. Hann blundar í hugum villimanna og þegar hann afhjúpast varpar hann frá sér ljósi. Hjá þér, nemi, berst hann um og reynir að brjótast í gegnum efnislegan hjúp. Þegar hið RAUNVERULEGA SJÁLF rumskar, hverfa draumar þess á brott og það fer að sjá veröldina eins og hún er og gera sér grein fyrir sjálfu sér í RAUNVERULEIKANUM og finnur að það er ekki aðeins undarlegur draumur.


Vitundarmiðja – heimsmiðja

Í RAUN OG VERU eru þið öll vitundarmiðjur – því að þannig hefur HIÐ ALGJÖRA komið því fyrir – og þið eruð að byrja að gera ykkur grein fyrir því. Fyrst þarf ÉG-IÐ að gera sér grein fyrir því að það er miðstöð hugsana, áhrifa og máttar, áður en það getur farið að birta þá eiginleika. Sú birting gerist í réttu hlutfalli við það, hvað langt menn eru komnir með að gera sér grein fyrir því. Sérstaklega skal tekið fram, að hér eru menn ekki að bera sig saman við eða metast á við aðra um að einn sé öðrum meiri og æðri. Slíkur samanburður er fráleitur og ekki sæmandi þroskuðu ÉGI. Hann væri þvert á móti merki um heimsku og þroskaleysi. Í hugleiðslu eiga menn að forðast allan samanburð um eiginleika og einfaldlega leitast við að gera sér grein fyrir að ÞEIR eru hin mikla vitundarmiðja – máttaraðsetur – miðstöð áhrifa og hugsana. Og eins og reikistjörnur sveima umhverfis sólina þannig sveimar þín veröld umhverfis ÞIG, því að þú ert miðja hennar.

Ekki þarf að færa rökvísar sönnur á þessi mál né reyna að fullvissa sjálfan sig með vitsmunalegum rökum um sannleiksgildi þeirra. Vitneskjan kemur ekki á þann hátt. Menn gera sér smám saman grein fyrir sannleikanum og hann nær til vitundar þeirra með einbeitingu og hugleiðingu. Hugsið sjálf ykkur sem Miðstöð vitundar,áhrifa og máttar því að það eru hin dulspekileg sannindi, sem ykkur mun takast að birta í réttu hlutfalli við, hversu skýra grein þið gerið ykkur fyrir þessu.

Engu máli skiptir hve lítilmótlegri stöðu þið haldið í mannfélaginu, eða hvert efnahagslegt hlutskipti ykkar eða menntun er. Hvað lágan sess sem þið skipuðuð væruð þið samt ekki reiðubúinn að skipta á ÉGI ykkar við lánsamasta, vitrasta eða æðsta mann heimsins. Nú efist þið kannski, en íhugið það dálítið nánar eitt augnablik og þið sjáið að ég hef rétt fyrir mér. Þó þið látið í ljósi ósk um að ,,vera” þessi eða hin persónan, þá meinið þið aðeins, að þið vilduð búa yfir gáfum þeirra, valdi eða stöðu. Ykkur langar kannski í eitthvað sem þeir eiga eða ráða yfir, en ykkur langar ekki eitt andartak til að skipta á sjálfi ykkar og þeirra. Hugsið um það andartak. Til þess að verða önnur persóna yrðuð þið sjálf að deyja og í stað þess að vera þið sjálf yrðuð þið önnur persóna. Þið yrðuð þurrkuð út úr tilverunni og yrðuð að öðrum. Þegar þú gerir þér grein fyrir þessu, sérðu að slíkt gætirðu ekki hugsað þér eitt andartak. Slík skipti eru heldur ekki möguleg. ÉG þitt verður ekki þurkkað út. Það er eilíft og heldur sífellt áfram til æðri sviða en verður alltaf sama ÉG-IÐ. Þú finnur líka að þú ert alltaf sama ÉG-IÐ enda þótt persóna þín taki ýmsum breytingum á lífsleiðinni. Þú finnur alltaf með þér sama ÉG-IÐ. Það er jafn óumbreytanlegt þótt þú aflir þér þekkingar,reynslu,máttar og visku. ÉG-IÐ er sjálfur guðdómsneistinn og verður ekki slökktur.

Þetta er fyrsta mantran sem er kennd í Rajayoga og er í raun sú mikilvægasta :


Ég er Miðja .
Veröld mín snýst umhverfis mig .
Ég er Miðstöð Áhrifa og Máttar .
Ég er Miðstöð Hugsunar og Vitundar .
Ég er Óháður líkamanum.
Ég er Ódauðlegur og mér verður ekki eytt.
Ég er Ósigrandi og Ósæranlegur .
ÉG !

Friður sé með yður …
Last edited by ANDI on Wed Feb 25, 2009 9:08 pm, edited 2 times in total.
Sá sem sér allar verur í sjálfum sér særir ekki aðra ... Ég er í öllu og allt er í mér .. ég er eins og hafið sjálft ...
User avatar
ANDI
Nemi
 
Posts: 16
Joined: Sun Jan 04, 2009 5:26 pm

Postby Freetha on Mon Jan 05, 2009 7:19 pm

Þetta minnir náttúrulega á áhveðna hluti innan búddhisma, sem og sólipsisma almennt ("cogito ergo sum" og önnur verk heimspeksinnsinns Descartés gerð að "trú" sem snýst um að það er bara til "ein" vitund og við erum öll þar með bara mismunandi hugsanir þessarar einu vitundar, einnig þekkt sem "ég er allt/ég er guð" trú að ráði).
Persónulega er ég þeirrar skoðanar að báðar kenningar (allt er eitt, allt er ýmislegt mysmunandi) innifali jafn margar ósannanlegar ályktanir að það sé ómögulegt að setja nokkuð framm sem sannleik.
(En það þíðir voða lítið frá mér komið, ég get ekki einusinni sannað eigin tilvist gagnvart sjálfum mér....)
Freetha
Nemi
 
Posts: 36
Joined: Mon Nov 24, 2008 10:08 pm

Postby ANDI on Wed Jan 07, 2009 10:17 pm

Ég bæði - ER OG ER EKKI ... :) Já, þetta minnir á ýmislegt í hindúisma og búddisma ....

" Að vera eða að ekki að vera, það er spurningin " :) Shakespeare ..

Ég held að það sé í Rig Veda þar sem einn einstaklingur talar um að vera í heiminum en í raun sé hann ekki í heiminum. Því að allt sem fer fram í hlutveruleikanum ( heiminum ) sé breytingum háð og sé því draumur einn ...

Af því að raunveruleiki hans, sá eini sem endist og er eilífur sé handan heimsins . Rig Veda eru samræður þar sem þessi einstaklingur áttar sig á að hann sé SJÁLFIÐ ( Andinn ) en ekki þessi blekkingarheimur margbreytileikans...

Hann áttar sig á að hann er ekki líkaminn né hugurinn ...

Ég er í heiminum en er ekki af honum ...

... svipar svolítið til þess sem Jesús Kristur sagði ... :)



:)Image
Sá sem sér allar verur í sjálfum sér særir ekki aðra ... Ég er í öllu og allt er í mér .. ég er eins og hafið sjálft ...
User avatar
ANDI
Nemi
 
Posts: 16
Joined: Sun Jan 04, 2009 5:26 pm

Postby Noctiluca on Tue Feb 10, 2009 4:05 am

Okei ég hef ekki alveg tíma til þess að lesa þetta allt ákkúrat núna, en ég elska Yoga og er að finna meira og meira fyrir því í hvert skipti sem ég stunda það!! vííí :) vildi bara koma þessu að. hehehe
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Almenn trúmál

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron