Í raun er mjög einfalt að leggja hring, en svo má gera það flóknara með hinum og þessum smáatriðunum, en það er allt undir einstaklingnum komið. Hér er mjög einföld lagning á hring lýst í skrefum, svo má bæta við og taka úr til þess að aðlaga þetta að einstaklingnum.
1. Þú þarft fjögur kerti. Það skiptir í raun ekki máli hvaða litir þeir eru en það er mjög gott að nota fjóra mismunandi liti, alla fyrir hvert frumafl. Hérna fyrir neðan eru hugmyndir um hvaða liti má nota.
Vatn: Dökkblár, blár, blágrænn, aðrir bláir litir sem eiga við vatn.
Jörð: Dökkbrúnn, dökkgrænn, aðrir jarðarlitir.
Eldur: Rauður, appelsínugulur, gulur, aðrir litir sem eiga við eld.
Loft: Hvítt, ljósblátt, ljósgult, aðrir litir sem eiga við loft.
2. Komdu nú kertunum fyrir í sitthvorum hornum, ef þú getur komist að því hvar höfuðáttirnar liggja, er það mjög gott. Annars geturðu gert það sem þér finnst passa. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um í hvaða höfuðátt frumöflin eru tengd við.
Vatn Vestur
Jörð Norður
Eldur Suður
Loft Austur
Vatn Skál með vatni
Jörð Skál með sand/mold/salti
Eldur Auka kerti
Loft Reykelsi
3. Þú þarft: reykelsi og reykelsisstand, eitt auka kerti í hvaða lit sem er, eina skál með vatni í og aðra skál með sandi/mold/salti í. Þetta seturðu svo hjá kertunum sem þú notaðir til þess að tákna höfuðáttirnar og frumöflin. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hjá hvaða frumafli þú setur hvað.
4. Þegar þú hefur sett allt þetta saman skaltu standa í miðju hringsins. Svo skaltu framkvæma næstu skref. Ef þetta er fyrsta skiptið sem þú leggur hring áttu væntanlega ekki rýting né sprota, en þú getur notað eitthvað sem þér líður vel með eins og t.d. prik eða eitthvað sem þér finnst eiga við. Annars notarðu bara hendurnar.
5. Stattu fyrir framan Jörð. Bentu í áttina sem þú settir kertið með sprota/rýtingi/höndunum þínum. Svo skaltu segja áköllun fyrir Jörð. Ef þú hefur ekki skrifað áköllun sjálf/ur geturðu notað þessa:
Blessuð sé orka Jarðar, sú sem dvelur í norðri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.
6. Snúðu þér að Lofti. Gerðu það sama og fyrir ofan, en segðu:
Blessuð sé orka Lofts, því sem dvelur í austri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.
7. Snúðu þér að Eldi. Gerðu það sama og fyrir ofan, en segðu:
Blessuð sé orka Elds, hans sem dvelur í suðri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.
8. Snúðu þér að Vatni. Gerðu það sama og fyrir ofan, en segðu:
Blessuð sé orka Vatns, þess sem dvelur í vestri, vertu nú yfir mér, og því sem fer fram hér.
9. Stattu aftur í miðju hringsins og bentu annað hvort beint upp eða beint niður eða hafðu hendurnar eins og þér finnst þægilegt. Segðu svo:
Blessuð sé orka Andans, þeim sem dvelur inni, vertu nú með mér, og því sem fer fram hér.
10. Núna geturðu gert það sem þú þarft að gera inni í hringnum.

