Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Orkustöðvarnar sjö

Hér má ræða allt um heilun, t.d. litaheilun, opj (orkupunktajöfnun), kristallaheilun ofl, draumum og hugleiðslu.

Moderator: Noctiluca

Orkustöðvarnar sjö

Postby Noctiluca on Thu Nov 15, 2007 5:47 pm

ORKUSTÖÐVARNAR

Samkvæmt austrænni speki eru sjö aðal-orkustöðvar í líkamanum sem halda líkamanum (lífsorkunni, chi) í jafnvægi, bæði líkamlega og andlega. Ef stöðvarnar eru ekki í jafnvægi eða þá ein sérstök í ólagi geta myndast hverskonar andlegir og líkamlegir kvillar.

Megin áherslan í orkustöðvaheilun er það að andleg og líkamleg heilsa fylgist að, og er því notað bæði andlegar aðferðir eins og t.d. hugleiðsla, litaheilun, slökun, ofl notað jafnframt kristallaheilun, nuddi, annarskonar heilun, og ofan á allt þetta á einstaklingurinn að borða rétt fyrir orkustöðvarnar sínar, hreyfa sig og fá næga hvíld.

Image

Hér að neðan munu koma upplýsingar um hverja orkustöð fyrir sig, og þær verða númeraðar eftir röðinni á myndinni, þannig þið getið sér hvar þær eru staðsettar.

1: Muladhara (mænustöð, oft kölluð rótarstöð)
Staðsetning: Rófubein
Frumefni: Jörð
Litur: Rauður
Jákvæður matur fyrir þessa stöð: Gulrætur, kartöflur, rófur, laukur, hvítlaukur, egg, kjöt, baunir, pipar. Próteinríkur matur og kryddaður matur.
Steinar: Blóðsteinn, Granat, Hauksauga, Ónyx, Hrafntinna, Ródokrosít, Hematít, Reykkvars

Þegar þessi orkustöð er í jafnvægi þá höfum við líkamlega vellíðan, gleði og yfirvegun. Við erum jarðbundin og lítum vel út, erum heilbrigð í alla staði og líður vel.

Þegar þessi orkustöð er í ójafnvægi þá lýsir það sér á margvíslegan hátt, en algengustu einkenni eru: orkuleysi, líkamlegt óþægindi þó svo að veikindi séu ekki endilega til staðar, kvef, mikil þreyta. Andleg einkenni eru kvíði, skapsveiflur, óþolinmæði, reiðisköst, áhugaleysi og kæruleysi gagnvart lífinu, skortur á einbeitingu og vilja.

2: Swadhisththana (spjaldhryggsstöð, kölluð hvatastöð)
Staðsetning: Spjaldhryggur
Frumefni: Vatn
Litur: Appelsínugulur
Jákvæður matur fyrir þessa stöð: Melónur, mangó, jarðarber, appelsínur, kókoshnetur, hunang, hnetur, vanilla, sesamfræ, kanill. Sætir ávextir og sætindi.
Steinar: Citrín, Raf, Karneól (Carnelian), gult og rautt Tígrisauga

Þegar þessi orkustöð er í jafnvægi fáum við stjórn yfir efnislegum löngunum og höfum meiri sjálfsaga. Okkur líður vel í bakinu og eigum auðvelt með að hreyfa okkur, og gerum mikið af því (t.d. labba, dansa, synda) og orkuflæði okkar er gott.

Þegar þessi orkustöð er í ójafnvægi lýsir það sér í einbeitingarskorti, meltingartruflunum, verkjum í mjóbaki, vandamálum með blöðru, nýru eða eggjastokka. Andlega getur þetta lýst sér í félagsfælinni hegðun, tilfinningum um að maður sé ekki nógu góður, að alltaf vilja kaupa meira og eignast meira, lítillegri reiði og eftirsjá.

3: Manipura (sólarplexusarstöð)
Staðsetning: Neðarlega á brjóstkassanum, rétt fyrir ofan nafla, sólarplexusinn.
Frumefni: Eldur
Litur: Gulur
Jákvæður matur fyrir þessa stöð: Pasta, brauðmeti, korn, mjólkurvörur, jógúrt, ostur. Kolvetnisríkur matur og mjólk.
Steinar: gult Tígrisauga, gulur Jaspis, Raf

Þegar þessi orkustöð er í jafnvægi höfum við góða heilsu og líkamlega fegurð, okkur líður vel bæði líkamlega og andlega. Mikil orka er í þessari stöð og gerir hún okkur kleift að breyta ,,hrárri” orku í eitthvað sem við getum notað, semsagt í jafnvægi gefur þessi stöð okkur mikla orku og gott orkuflæði. Þessi stöð hefur áhrif á marga hluta líkamans og einnig ónæmiskerfið, þannig að hún gerir okkur hæf til að verjast veikendum og láta okkur batna.

Þegar þessi örkustöð er í ójafnvægi sést það einna helst í svefnleysi, kvíða, meltingartruflunum, höfuðverkjum, vöðvabólgum, kvefi og langvarandi vanlíðan. Einnig hefur þessi stöð verið tengd við alvarlega sjúkdóma, t.d. anorexíu og sykursýki.

4: Anahata (hjartastöð)
Staðsetning: Hjartasvæði – miðjan í orkustöðvunum með þrjár stöðvar fyrir neðan sig og þrjár fyrir ofan sig.
Frumefni: Loft
Litur: Grænn
Jákvæður matur fyrir þessa stöð: Spínat, kál, broccoli, sellerí, grænt te, kryddjurtir. Grænt grænmeti og jurtate, og grænar (en ekki of sterkar) kryddjurtir.
Steinar: Rósakvars, Granat, Karneól (Carnelian), bleikt Túrmalín, Ródókrósít, Malakít, Akvamarín

Þegar þessi orkustöð er í jafnvægi erum við róleg, umburðarlynd, vinaleg, ákveðin (látum ekki vaða yfir okkur), skilningsrík og tilfinninganæm.

Þegar þessi orkustöð er í ójafnvægi getur það sýnt sig í hjarta- og lungnakvillum, kvefi, háum blóðþrýstingi og astma. Andlega getur það sýnt sig í stjórnleysi, innilokunarkennd, að líða eins og maður sé fastur í lífinu og daglegu rútínunni, þörfum ófullnægt, að vilja vera við stjórn, skortur á sjálfsáliti, andleg einangrun.

5: Visuddha (hálsstöð)
Staðsetning: Háls
Frumefni: Loft
Litur: Ljósblár
Jákvæður matur fyrir þessa stöð: Vatn, ávaxtasafi, jurtate, sítrónur, súraldin, greipaldin, kiwí, epli, perur, plómur, ferskjur, apríkósur, salt. Allir ávaxtasafar og súrir ávextir.
Steinar: Akvamarín, blátt og grænt Flúorít, Lapis Lazuli, blátt Tópas, blátt og grænt Túrmalín, Sódalít

Þegar þessi orkustöð er í jafnvægi erum við heilbrigð í hálsinum og laus við bólgur eða sýkingar á því svæði, við eigum auðvelt með að tjá okkur og okkur líður vel í vöðvunum á þessu svæði, t.d. öxlunum.

Þegar þessi stöð er í ójafnvægi sýnir það sig í vöðvabólgu, í kringum háls og axlir, eyrna- og hlustunarverkjum, hálsbólgu, hálssýkingu, vandamálum með hálskirtla. Andleg einlenni geta verið skortur á sköpunargáfu og tjáningarleysi, einstaklingurinn á erfitt með að tjá tilfinningar sínar og er að halda aftur af sér.

6: Ajna (ennisstöð eða þriðja augað)
Staðsetning: Á milli augnanna á enninu
Frumefni: Ekkert, öll
Litur: Fjólublár
Jákvæður matur fyrir þessa stöð: Bláber, rauð vínber, rauðvín, rauður greipaldinsdjús. Rauðlitaðir og sætir ávextir.
Steinar: Amethyst, fjólublátt Flúorít, fjólublátt Jasper, Kvarskristall

Þegar þessi orkustöð er í jafnvægi líður okkur vel í augum og höfði, fáum ekki tíða höfuðverki af ástæðulausu og erum með gott minni. Við erum skipulögð og getum séð heildarmyndina. Við erum skynsöm og höfum stjórn á tilfinningum okkar.

Þegar þessi orkustöð er í ójafnvægi er algengt að kvillar á borð við höfuðverki eða mígreni séu til staðar. Einnig eru vandamál með sjónina tákn um að Ajna sé í ójafnvægi. Einnig getum við orðið óskipulögð og átt erfitt með að einbeita okkur að einum hlut í einu. Hugsanir okkar verða kaótískar, við eigum erfitt með að taka rökréttar ákvarðanir, við fáum oft martraðir og höfum ekki stjórn á tilfinningum okkar.

7: Sahasrara (hvirfilsstöð eða höfuðsstöð)
Staðsetning: Efst á hvirfli, ofan á höfði
Frumefni: Ekkert, öll
Litur: Hvítur
Jákvæður matur fyrir þessa stöð: Þessi stöð er tengd við það hugtak að fasta. Að borða engan mat í ákveðinn tíma til að hreinsa sig, andlega og líkamlega.
Steinar: Kvarskristall, Selenít

Þegar þessi orkustöð er í jafnvægi erum við með góðan skilning á hlutunum og getum séð þá í stærra samhengi. Við eigum létt með að setja okkur í spor annarra og getum treyst tilfinningum okkar. Okkur líður vel andlega og erum með góða sköpunargáfu, samkennd, gott sjálfsálit, gott sjálfstraust og við erum yfirveguð með góða stjórn á tilfinningum okkar. Við erum ánægð og hamingjusöm.

Þegar þessi orkustöð er í ójafnvægi sýnir það sig í einangrun, þunglyndi og síþreytu. Þegar þessi stöð er ekki í jafnvægi getur það haft mikil áhrif á allan líkamann og einstaklingnum líður eins og það sé eitthvað að, þó svo að ekki sé endilega hægt að benda á það. Veikindi og slappleiki fylgja, mikil þreyta og orkuleysi, höfuðverkir, kvef og aðrir kvillar sem fylgja því að hinar stöðvarnar séu ekki í lagi.

Image
Last edited by Noctiluca on Thu Jan 24, 2008 5:40 pm, edited 5 times in total.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

vá:D

Postby Libra4 on Thu Nov 15, 2007 9:19 pm

OH! Ég las heila bók um orkustöðvarnar! svakalega var hún skemmtileg!

Þetta er líka rosalega góð grein!!!

:D flott jobb hjá þér:P
User avatar
Libra4
Steina-Norn
 
Posts: 77
Joined: Thu Sep 27, 2007 1:33 pm
Location: Iceland

Postby Noctiluca on Thu Nov 15, 2007 9:46 pm

Takk :)
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Noctiluca on Mon Dec 03, 2007 8:38 pm

3/12/2007:

Bætti við hvaða steinar passa við orkustöðvarnar. Eins og þið sjáið örugglega þá fara litir steinanna oftast við liti orkustöðvarnar. Þetta eru bara sumir af þeim steinum sem hægt er að nota við orkustöðvarnar, margir steinar virka jafnvel á þær allar (t.d. kvarskristall). En ég bæti eflaust meiru við, hef ákveðið að hafa þetta topic svona gagnagrunn um orkustöðvarnar.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Noctiluca on Thu Dec 06, 2007 9:33 pm

6/12/2007

Bætti inn litum í nöfnin á orkustöðvunum :) Þessir litir fara við þá liti sem eru yfirleitt tengdir við þessar orkustöðvar. Ég hef samt séð nokkrar mismunandi útgáfur, t.d. þar sem þriðja augað er ljósblátt og hvirfillinn fjólublár. En mér persónulega finnst fjólublár passa mun betur við þriðja augað, því t.d. Amethyst er einmitt fjólublár og passar alveg mjög vel við þriðja augað. Einnig er hvirfilsstöðin stöð visku og jafnvægis, og mér finnst hvítur koma vel út í því hlutverki.

Ætla að bæta inn meiru í kvöld.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby DullaHvellstað on Tue Dec 11, 2007 5:41 pm

en hvernig er best að koma öllum orgkustöðvonum í jafnvægi?
DullaHvellstað
Vígslunemi
 
Posts: 2
Joined: Mon Dec 10, 2007 1:31 am

Postby Noctiluca on Wed Dec 12, 2007 12:25 pm

T.d. með því að borða rétt fyrir þær, með kristallaheilun, með hugleiðslu, ofl. Ég mun setja einhverjar aðferðir hér inn þegar ég hef tíma :)
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Heilun, hugleiðsla og draumar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron