Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Kristni og Wicca

Hér er hægt að ræða trúarbrögð og önnur andleg málefni.

Moderator: Noctiluca

Kristni og Wicca

Postby Sekhmet on Fri Sep 21, 2007 2:59 pm

Daginn,
Nú hef ég lesið að erlendis séu hópar af kristnu Wicca fólki. Er eitthvað um það hérlendis?
Nú finnst mér Wicca mjög áhugavert og hefur fundist lengi en ég er kristin. Ég sé það ekki í hendi mér að það fari saman að tigna gyðjur og vera Wicca og svo það að trúa á Guð almáttugan :S hefur einhver hérna reynslu af þessu?

kv
Sekhmet
Hin misskilda gyðja.
Sekhmet
Vígslunemi
 
Posts: 5
Joined: Fri Sep 21, 2007 2:55 pm

Postby lunamaat on Mon Sep 24, 2007 1:22 am

Ég hef alveg heyrt af þessu. Það er svosum heldur ekkert í eclectic Neo-Wicca sem bannar það að aðhyllast kristna guðinn. Það er fremur kristintrúin sem bannar t.d. galdraiðkun og að ákalla einhver element og svoleiðis. Ég skil alveg fólk sem vill vera kristið Wicca af því mig langaði það sjálfri þegar ég var fyrst að byrja í þessu, en svo áttaði ég mig á því hvað það var í raun og veru mikil hræsni. Eftir því sem ég var lengur í þessu því auðveldara og eðlilegra var fyrir mig að trúa á aðra guði líka. Ég áttaði mig smám saman á því að Wicca samræmdist mun betur minni persónulegu trú en kristni. Mér fannst bara skrítið að biðja til annarra goða af því ég þekkti þau ekki eins mikið og kristna guðinn og ég var svo vön því að hið guðlega var alltaf í karlkyni líka. Þetta var eitthvað sem var búið að kenna manni frá barnsæsku og maður þekkti hreinlega ekkert annað. Ég hef samt ekkert á móti kristni og finnst það falleg trú. Ég held að þú ættir bara að gefa þér tíma til að skoða þetta og prófa þig áfram og aðhyllast síðan það sem þú finnur í hjarta þínu að er rétt, eins væmið og það kann að hljóma.

Kv. Luna Maat
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Noctiluca on Thu Oct 11, 2007 9:12 am

Hæ Sekhmet :)

Já ég hef oft heyrt um fólk sem stundar svokallað kristið Wicca. Ég skil það að blanda saman Wicca og kristnum gildum eða einhverjum hugmyndum úr kristni trú, en að mínu mati væri það mjög erfitt að vera bókstaflega kristin og Wicca-trúar, því að kristin trú hreinlega bannar galdraiðkun og dýrkun á öðrum goðum, og svo framvegis.

Þetta er þó bara mín skoðun og ég hef hitt nokkrar nornir sem ná að samræma þetta á góðan hátt.

Hér er síða sem þú getur skoðað:

http://www.christianwicca.org/
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Almenn trúmál

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron