Isis er oft kölluð "hin fullkomna gyðja". Þetta er út af miklu kröftum hennar hvað varðar galdra, kvenleika hennar (hún er líka kölluð hin "fullkomna kona") og jafnvægið sem í henni ríkir. Þetta jafnvægi sést best í hæfileikum hennar til að skapa líf og eyða því; hún er dýrkuð bæði sem gyðja lífs og dauða, bæði sköpunar og eyðileggingar. Isis, gyðja tunglsins, fæðir Hórus, guð sólarinnar, og af þeim ástæðum er hún öft kölluð móðir alls.
Hún er mjög góð móðir og elskuleg eiginkona, en hún er einnig mjög kraftmikill andstæðingur.
Isis er systir og kona Ósírisar, og sögurnar segja að þegar Seth varð mjög afbrýðisamur út í samband Isisar og Ósírisar, drap hann Ósiris og skar líkama hans í marga búta. Isis gerði allt sem hún gat með galdrahæfileikum sínum til að setja líkama Ósírisar saman aftur. Hún náði að ná honum aftur til lífs, en aðeins í eina nótt. Það var á þeirri nótt sem Isis og Osiris gátu Hórus.
Sumar sögur segja hins vegar aðra sögu af hvernig Hórus varð til. Isis á að hafa fundið líkama Ósírisar, í mörgum bútum, og tekið lim Ósírisar og stundað mök með limi hans, og orðið ólétt með Hórus.
Isis er sögð hafa alla eiginleika kvenleikans: ást, alúð og umönnun. Hún var þekkt fyrir að kenna fólki galdra og heilun, sérstaklega konum. Í staðinn fyrir að eyða tíma sínum með hinum guðunum, fannst henni betra að vera með fólki sínu sem tilbað hana, og hjálpaði þeim eins og hún gat.
Hún var mikill heilari, og er oft notuð í athöfnum og göldrum sem viðkoma heilun. Hún gat líka breytt sér í fuglslíki, með stóra, fallega vængi. Hún flaug yfir landið og breiddi fersku lofti og frjósemi til náttúrunnar og fólksins.
Í ”The Book of The Dead”, var henn lýst svo: ”Hún sem fæðir himininn og jörðina, þekkir munaðarleysingjann, þekkir ekkjuna, leitar að réttlæti fyrir hina fátæku og byrgi fyrir hina aumu”.
