Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Hvað eru draumar?

Hér má ræða allt um heilun, t.d. litaheilun, opj (orkupunktajöfnun), kristallaheilun ofl, draumum og hugleiðslu.

Moderator: Noctiluca

Hvað eru draumar?

Postby Noctiluca on Thu Nov 15, 2007 10:57 pm

Hvað eru draumar?

Sagt er að alla dreymi og það marga drauma sömu nóttina. Langflestir draumarnir gleymast og því virðist hugurinn ekki festa þá í langtímaminninu, þeir hverfa án þess að nokkuð sé eftir sem minnir á þá. Einstöku draumur virðist sterkari en aðrir og ef dreymandinn verður ekki fyrir truflun í svefnrofunum situr þessi draumur eftir um örskotsstund. Ef hann er hugleiddur og farið strax yfir atburðarásina má festa hann sér í minni en langbest er að hripa aðalatriðin á blað.

Draumar geta verið heillandi og gefið sterka þægileika- og öryggistilfinningu. Stundum segir fólk þegar vel gengur: „Þetta er eins og draumur.“ En draumar geta líka verið ógnvekjandi og þá er gott að hafa í huga að ljótur draumur getur stafað frá þungmeltum mat eða glápi á ofbeldisfullt myndefni.
Svo lengi sem sögur fara af hafa menn reynt að ráða framúr táknum drauma. Hver draumráðning er persónubundin og ekki er víst að merkingar táknanna séu þær sömu frá manni til manns. Margir leita að forsögn um framtíðina í flóknum draumtáknum, aðrir eru svo berdreymnir að þeir segja fyrir að morgni um viðburði dagsins. Í viðtölum við sjómenn má iðulega lesa frásagnir af því hvernig draumar hafa haft áhrif á fiskisæld þeirra og einnig varað þá við aðsteðjandi hættum. Hver þekkir ekki hvernig það er að sofna út frá þungum áhyggjum en dreyma síðan skíra og einfalda lausn á vandamálunum. Mörg dæmi hafa verið tekin af rithöfundum og hugvitsmönnum sem hafa verið að brjóta heilann um erfitt viðfangsefni undir svefninn en lausnin birst þeim í draumi. Slíkt er talið sanna að undirmeðvitundin sé að störfum í svefninum og fari þá sínar eigin leiðir við úrlausn vandans.

Draumar geta verið uppgjör við fortíðina, nokkurs konar sáttagjörð eða tilraun til að greiða úr djúpstæðum flækjum sem hafa áhrif á persónuleika dreymandans. Grunnurinn að vellíðan á fullorðinsárum er lagður í bernsku en ýmsar kenningar halda því fram að í viðbót við uppeldisáhrifin beri manneskjan í sér ýmsar leyndar hliðar sem eru bæði góðar eða vondar. Í þessari skyggðu tilveru getur ýmislegt leynst sem ekki hefur fengið að dafna en getur brotist út í draumum. Þetta geta verið atriði sem við eigum erfitt með að sætta okkur við hjá okkur sjálfum eða í hegðum og gjörðum annarra og þvælast ósjálfrátt fyrir, kannski sem fordómar, kannski sem bæling á persónuleikanum. Þessi atriði eiga það til að lita draumana og stýra þeim en með æfingu er hægt að ráða táknin. Þetta er sagt svipað og að lesa skaphöfn fólks út úr rithönd þess. Hver og einn ber sín sérkenni og þess vegna er mjög erfitt fyrir aðra en þá sem þekkja viðkomandi mjög vel að ráða slíka drauma.

Reynt hefur verið að skipta draumum í flokka eins og til dæmis ráðgefandi draumar, forspár eða aðvörunar draumar, tilvísandi og upplýsandi draumar. Það getur tekið langan tíma að læra að flokka draumana sína og það tekur líka tíma og þolinmæði að ná æfingu í að ráða þá. Vonandi getur þessi bók orðið hjálp á þeirri leið.

Höfundur: Þóra Elfa Björnsson
Tekið af: www.draumur.is
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby 93 Kisur on Fri Nov 16, 2007 9:08 am

Einstöku draumur virðist sterkari en aðrir...
...Ef hann er hugleiddur og farið strax yfir atburðarásina má festa hann sér í minni en langbest er að hripa aðalatriðin á blað.

Ef maður hefur áhuga á því að kynnast draumum sínum betur, er mjög gott að hafa bara einhverja bók sem þú getur skrifað í á náttborðinu. Svo, í hvert skipti sem þú vaknar og mannst einhvern draum, skrifar þú niður stikkorð til að hjálpa þér að muna hann. Það getur verið að þegar þú vaknar um morguninn munirðu ekki eftir drauminum, en þegar þú lest svo stikkorðin á blaðinu eru meiri líkur á því að þú munir hann aftur.
V.V.V.V.V.
(Vi Veri Veniversum Vivus Vici)
By the Power of the Truth, I, while living, have conquered the universe.
-J. Faust
User avatar
93 Kisur
Verðandi Norn
 
Posts: 55
Joined: Sun Oct 28, 2007 1:23 am
Location: Ísland

Postby Noctiluca on Fri Nov 16, 2007 10:29 am

Já það er mjög sniðugt! Ég gerði það sjálf í langan tíma þegar ég var að fylgjast sérstaklega með draumunum mínum, því það var þegar ég var fyrst að uppgötva að ég væri berdreymin.

En annars þá á ég næstum því erfitt með drauma. Mig dreymir svo svakalega mikið og það á hverri nóttu, og svo man ég allt saman, öll ponsulitlu smáatriðin og allt.. Stundum ruglast ég á hvort að hlutir hafi gerst í raunveruleikanum eða í draumi! Haha :lol:
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

erfitt

Postby Libra4 on Fri Nov 16, 2007 11:43 am

Ég sjálf er berdreymin og er það ættgengt hjá mér, hinsvegar fæ ég ekki draumana alveg beint lagða í hendurnar mínar. Ég fæ draumana í gátum og svona ruglandi atburðum sem ég þarf að finna út sjálf!
User avatar
Libra4
Steina-Norn
 
Posts: 77
Joined: Thu Sep 27, 2007 1:33 pm
Location: Iceland

Postby Noctiluca on Fri Nov 16, 2007 11:45 am

Já ég líka Libra4 - það eru alltaf svona tákn sem þýða eitthvað og ég þarf þá að ráða úr þeim, en stundum fatta ég strax hvað þeir áttu að þýða.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Heilun, hugleiðsla og draumar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron