-Talin elstu skipulögðu trúarbrögðin, kannski 5000 ára
-Fjölgyðistrú, heimildir finnast um allt að 330þús mismunandi guðum eða gyðjum, samt á vissan hátt er þetta líka eingyðistrú
-Trúariðkun mjög mismunandi eftir einstaklingum
-Flókið trúarkerfi
-Enginn einn stofnandi trúarinnar
-Ekkert helvíti eða synd
-Lífið er ein stór hringrás, Samsara, og markmiðið í lífinu er að losna undan Samsara, endalausri hringrás endurfæðinga (þjáninga) og láta sálina öðlast lausn og eilífa sælu – Moksa (eilíf sæla)
-Brahma – guðleg orka sem er í öllu og í öllum. Sumir segja að hinir óteljandi guðir hindúismans séu aðeins mismunandi birtingarmyndir Brahma.
- Vishnu
- Shiva
Þeir tveir mikilvægustu birtingarmyndir Brahma. Næstum því þríeinn guð – Brahma, Vishnu og Shiva. Sambærilegt kristnu ímyndinni um Föður, Son og hinn Heilaga Anda.
-Karma sér um hvernig þú endurfæðist í næsta lífi og hvernig þú hefur það í þessu lífi. Karma er nokkurnveginn samansafn góðra gjörða og hugsana. Ef þú lifir lífinu vel, ert góður, hreinskilinn, gjafmildur ofl, þá safnarðu upp góðu karma og þá kemur það tilbaka til þín og gefur þér gott líf eða gott næsta líf.
-Heilög rit þeirra eru Veda – söguljóð – 5000 ára gömul? 4 söfn rita: Rig veda, Sama veda, Yajur veda, Atharva veda
