1. Hvaða ár gaf Gerald Gardner út bókina Witchcraft Today sem markaði upphaf Wicca iðkunar í Bretlandi? (1 stig)
2. Hvað heitir aðal spámaður múslima og hvað heitir helgasta rit þeirra? (2 stig)
3. Hver er megin regla Þelema (Thelema) og hver er stofnandi reglunnar? (3 stig)
4. Hvað heita hrafnar Óðins samkvæmt norrænni goðafræði? (2 stig)
5. Samkvæmt kristinni trú, hvaða þrjá þætti/persónur inniheldur hin heilaga þrenning? (2 stig)
6. Hvaða víðþekkta trú ber sexhyrnda stjörnu sem tákn sitt? (1 stig)
7. Hvað eru mörg spil í hefðbundnum Tarot stokki? Tarot stokkur skiptist í tvo flokka, hvað heita þeir flokkar og hvað eru mörg spil í hvorum flokki? (3 stig)
8. Hvaða guð hindúisma hefur fílshöfuð? (2 stig)
9. Hvað heita örlaganornirnar þrjár samkvæmt norrænni goðafræði? (2 stig)
10. Hvaða gríski guð hefur fætur og horn eins og geit? (2 stig)
Svör sendist í formi einkaskilaboða til mín. Engin verðlaun eru í boði, en vinningshafinn verður tilkynntur hér á vefnum. Þetta er lítið "project" sem ég er með í gangi inni á www.hugi.is/dulspeki, ákvað að skella þessu hérna inn líka. Réttu svörin ásamt fyrstu 3 sætum verða birt eftir 2 vikur.
