Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Draumaráðning

Hér má ræða allt um heilun, t.d. litaheilun, opj (orkupunktajöfnun), kristallaheilun ofl, draumum og hugleiðslu.

Moderator: Noctiluca

Draumaráðning

Postby Noctiluca on Thu Mar 13, 2008 6:48 pm

Hæ allir,

mig er búið að dreyma undarlega drauma síðustu daga. Í gærnótt var fjórða skiptið á einni viku sem mig dreymdi náttúruhamfarir - og mér dettur ekkert í hug hvað þetta gæti þýtt. Hefur einhver hugmynd um það? Venjulega legg ég ekki mikið upp úr hverjum og einasta draum sem mig dreymir, en fjórum sinnum nánast sami draumurinn finnst mér skrýtið.

Draumurinn er í grófum dráttum svona:
:arrow: Ég er í skólanum mínum nema hann er heimavistaskóli, allir vinir mínir eru þarna og svona
:arrow: Skólinn er greinilega með góða aðstöðu í svona tilfellum, en við erum semsagt kjur þar þó svo að það eigi að vera frí, út af náttúruhamförunum úti. Erum semsagt alveg óhult þarna inni.
:arrow: Mikið er um dýr þarna, stór kattardýr á borð við ljón og tígrisdýr sem birtast mér á göngum skólans þó svo þau séu ekki þarna í raun og veru.
:arrow: Vinur minn "passar upp á mig" og hjálpar mér í gegnum þetta allt saman.
:arrow: Tilfinningarnar í draumnum eru ekki svo slæmar, smá kvíði af því að það eru einhverjar þvílíkar náttúruhamfarir í gangi og ég veit ekkert um hag fjölskyldu minnar. Annars eru tilfinningarnar eiginlega einkenndar af öryggi og vináttu.
:arrow: Aðal áherslan er á náttúruhamfarirnar.

Vonandi getur einhver komið með einhverjar hugmyndir :)
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Anteros on Tue Mar 25, 2008 7:14 pm

Náttúruhamafarir í draumi geta bæði endurspeglað tilfinningaástand dreymandans sem og ástand í umhverfi viðkomandi.
Íhugaðu hvort hann tengist samskiptum þínum við aðra og þá umhleypinga/róstur í samskiptum.
Anteros
Nemi
 
Posts: 28
Joined: Tue Mar 25, 2008 7:04 pm

Postby Noctiluca on Wed Apr 02, 2008 1:59 am

Takk fyrir ábendinguna - skoða þetta betur.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Heilun, hugleiðsla og draumar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron