The Circle Within - Creating a Wiccan Spiritual Tradition e. Dianne Sylvan
Ég ætla að byrja á því að segja eitt: Þessi bók er frábær. Ég var að leggja hana frá mér og ég er ennþá spennt yfir efninu sem er í henni og því sem hún hefur að bjóða upp á. Fyrst og fremst er þessi bók fyrir lengra komna, þá sem hafa lesið endalausar 101-bækur og búin að læra allan grunninn í Wicca. Þessi bók fer lengra en það, og Dianne vekur upp athyglisverðar og áhugaverðar umræður um Guðinn og Gyðjuna, samband okkar við þau og Jörðina. Hún leggur mikið upp úr daglegri iðkun, bæði í gegnum hugleiðslu, bænir og athafnir. Einnig ræðir hún léttilega hvað það þýðir að dýrka Náttúrunna í allri sinni dýrð, og hvað Myrkra Gyðjan hefur upp á að bjóða.
Bókin er tvískipt; fyrri hluti fjallar um fræðina, spekina og meira, á meðan seinni hlutinn er fullur af athöfnum, hugleiðslum og bænum, undir titlinum “Book of Moonlight”.
Kaflarnir í hluta eitt eru sem svo:
1 – Stepping into the Circle
An introduction to personal spiritual practice
2 – In Search of a Mystery
Our relationship with Deity
3 – Living the Path
Ethics and standards of behaviour
4 – The Temple Hearth
Concepts of sacred space
5 – Building a Practice
Elements of a daily practice
6 – The Turning Wheel
The Wheel of the Year and the elements
7 – The Dance of Life
Creating personal rituals
Bókin er vel skrifuð og áhugaverð, og heldur manni við efnið allan tímann. Ég mæli eindregið með þessari bók fyrir alla þá sem eru búnir með grunninn og vilja fá eitthvað bitastætt til að lesa. Þú finnur enga tilbúna galdra í þessari bók, heldur speki og pælingar um hvað það er að vera Wiccatrúar, hvaða skyldur höfum við og hvað felur trú okkar í sér? Hvernig getum við ræktað samband við Guðinn og Gyðjuna og bætt því inn í daglega iðkun okkar?
Þessi bók er fyrir þá sem finnast athafnirnar verða orðnar nokkuð þurrar og þreyttar, og finna ekki lengur djúpstæðan tilgang með iðkun sinni. Ef þú hefur áhuga á hvernig þú getur ræktað daglegt samband við Guðinn og Gyðjuna, þá er þetta bókin fyrir þig.