Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Bókagagnrýni Lunamaat

Hefurðu lesið einhverjar góðar bækur um Wicca? Endilega segðu hinum frá.

Moderator: Noctiluca

Bókagagnrýni Lunamaat

Postby lunamaat on Fri Nov 30, 2007 3:52 am

Mig langaði að fjalla um nokkrar bækur sem ég á og hef lesið. Ég er ótrúlegur bókanörd og á held ég núna 117 bækur um dulspeki, galdra og heiðni, þó ég hafi nú kannski ekki lesið alveg allar ennþá, verð ég að viðurkenna. Sumar þeirra keypti ég sem alger byrjandi á gelgjunni og margar af einskærri forvitni, án þess að sjá annað en titilinn, þannig að plís ekki dæma mig fyrir að eiga þær.

Þessi þráður er orðinn að sticky! Woohoo! Annars, ég endaði á því að bæta við fleiri bókagagnrýnum hér fyrir neðan í stað þess að gera bara reply. Ég merki þetta bara í hlutum í hvert skipti sem ég bæti hérna inn. Ég hugsaði að það væri eflaust betra að halda þessu bara saman. Ég nenni samt ekki að setja þetta allt inn í stafrófsröð og eitthvað, heldur hendi inn gagnrýni á hinum og þessum bókum eftir hentugleika. Þið verðið bara að lifa með því. Ég tek svo líklega til í þessu þegar þetta er allt komið inn.

Setti inn hluta III þann 4. maí 2008.


Hérna er "complete" listinn yfir bækurnar mínar og ég stefni á að skella inn gagnrýni fyrir þær allar með tímanum.


HEILDARLISTI

A Complete Guide to Fairies and Magical Beings e. Cassandra Eason
A Complete Guide to Psychic Development e. Cassandra Eason
A Handbook for Wiccan Clergy e. Kevin Gardner
A Source-Book of Seið e. Stephen E. Flowers og James A. Chisholm (edited and translated by)
A Witches' Bible e. Janet & Stewart Farrar
Abrahadabra e. Rodney Orpheus
Advanced Candle Magick e. Raymond Buckland
Advanced Wicca, Exploring Deeper Levels of Spiritual Skills and Masterful Magick e. Patricia Telesco
Advanced Wiccan Spirituality: Revitalising the Roots and Foundations e. Kevin Saunders
Advancing The Witches' Craft: Aligning Your Magical Spirit Through Meditation, Exploration And Initiation Of The Self (Beyond 101) e. Lord Foxglove
Allt um jóga e. Lucy Lidell, Narayani og Giris Rabinovitch
Allt um nudd e. Lucinda Lidell, Sara Thomas, Carola Beresford Cooke og Anthony Porter
An ABC of Witchcraft Past and Present e. Doreen Valiente
Animal Speak e. Ted Andrews
Animal Speak Workbook e. Ted Andrews
Arbatel of Magick e. Robert Turner (translated by)
Aura Reading for Beginners e. Richard Webster
Beginner's Guide to Mediumship e. Larry Dreller
Book 4, Liber Aba, Magick e. Aleister Crowley
Buckland's Complete Book of Witchcraft e. Raymond Buckland
Burt með verkina e. Chris McLaughlin
Bók Emmanuels e. Pat Rodegast og Judith Stanton
Castings: The Creation Of Sacred Space e. Ivo Dominguez
Circles of Power e. John Michael Greer
Covencraft e. Amber K
Dancing with Dragons e. D. J. Conway
Draumabókin e. Bíbí Gunnarsdóttir
Drawing Down the Moon e. Margot Adler
Drumming the Spirit to Life e. Russell Buddy Helm
Earth Power e. Scott Cunningham
Earth, Air, Fire & Water e. Scott Cunningham
Elements Of Ritual: Air, Fire, Water & Earth in the Wiccan Circle e. Deborah Lipp
Encyclopedia of Magickal Herbs e. Scott Cunningham
Encyclopedia of Wicca & Witchcraft e. Raven Grimassi
Encyclopedia of the Strange, Mystical and Unexplained e. Rosemary Ellen Guiley
Enochian Magic for Beginners e. Donald Tyson
Enochian Sex Magick e. Aleister Crowley, Lon Milo Duquette, Christopher S. Hyatt
Exploring Spellcraft e. Gerina Dunwich
Fifty Years Of Wicca e. Frederic Lamond
Fjölfræðibókin um spádóma og spásagnalist e. Francis X. King
Frá Taó til jarðar e. José Stevens Ph.D.
Gerald Gardner And the Cauldron of Inspiration: An Investigation into the Sources of Gardnerian Witchcraft e. Philip Heselton
HOW TO do Automatic Writing e. Edain McCoy
Heilun, orka – vitund – mannþroski e. Anne Sophie Jörgensen og Jörgen Höher Ovesen
Hendur ljóssins e. Barbara Ann Brennan
High Priestess e. Patricia Crowther
How to Make Amulets, Charms and Talismans e. Deborah Lippman
Hver er ég: Bók um stjörnuspeki e. Gunnlaugur Guðmundsson
Italian Witchcraft e. Raven Grimassi
Íslenskar spárúnir e. Tómas V. Albertsson
Jesus and the Lost Goddess : The Secret Teachings of the Original Christians e. Timothy Freke, Peter Gandy
Light Emerging e. Barbara Ann Brennan, Thomas J. Schneider
Living Wicca, a Further Guide for the Solitary Practitioner e. Scott Cunningham
Lækningamáttur þinn e. Harold Sherman
Magical Aromatherapy e. Scott Cunningham
Magickal Herbalism e. Scott Cunningham
Music & Worship in Pagan & Christian Antiquity e. Johannes Quasten
Móðuraflið – Kundalini Yoga e. Sri Chinmoy
Paths of Wisdom e. John Michael Greer
Practical Candle Burning Rituals Raymond Buckland Llewellyn Publications 2002
Practical Color Magick Raymond Buckland
Practical Solitary Magic e. Nancy B. Watson
Progressive Witchcraft e. Janet Farrar og Gavin Bone
Psychic Protection (1) e. William Bloom
Psychic Protection (2) e. Ted Andrews
Reiki e. Penelope Quest
The Roebuck in the Thicket: An Anthology of the Robert Cochrane Witchcraft Tradition e. Evan John Jones, Robert Cochrane og Michael Howard
Sabbats e. Edain McCoy
Santeria, African Magic in Latin America e. Migene González-Wippler
Scrying for Beginners - Tapping into the Supersensory Powers of Your Subconscious e. Donald Tyson
Seasons of the Witch, Poetry and Songs to the Goddess e. Patricia Monaghan
Secrets of Shamanism e. Jose Stevens, Ph.D. & Lena S. Stevens
Secrets to Western Sex Magick e. Frater U:.D:.
Signs, Symbols and Omens - an Illustrated Guide to Magical & Spádómsbókin, Lófalestur~Tarot~Spilaspá~Bollaspá e. Guðni Björgólfsson
Spáð í spilin e. Nerys Dee
Spáð í stjörnurnar e. Grant Lewi og Liz Greene
Spells and How They Work e. Janet Farrar
Spiritual Symbols e. Raymond Buckland
Singing Bowls: A Practical Handbook of Instruction and Use e. Eva Rudy Jansen
Spiritual Mentoring: A Pagan Guide e. Judy Harrow
Stóra Draumaráðningabókin e. Símon Jón Jóhannsson
Tantra, the Art of Conscious Loving e. Charles og Caroline Muir
Tarot e. Jonathan Dee
Tarot spilin e. Kathleen McCormack
Teaching WitchCraft: A Guide for Teachers and Students of the Old Religion e. Miles Batty
Teen Witch e. Silver Ravenwolf
The Art and Meaning of Magic e. Israel Regardie
The Art of Drawing Spirits Into Crystals e. Johannes Trithemius
The Art of True Healing e. Israel Regardie
The Basics of Magick e. K. Amber
The Book of Thoth (Egyptian Tarot) e. Aleister Crowley
The Book of the Dead, the Hieroglyphic transcript and translation into English of the ancient Egyptian Papyrus of Ani, with a comprehensive introduction and commentary e. E.A. Wallis Budge
The Crystal Bible e. Judy Hall
The Element Encyclopedia of 5000 Spells, the ultimate reference book for the magical arts e. Judika Illes
The Faries Oracle e. Texti: Jessica Macbeth, Spil: Brian Froud
The Gardnerian Book of Shadows e. Aidan A. Kelly (compiled by)
The God of the Witches e. Margaret Alice Murray
The Herb Book e. John Lust
The History of Magic and the Occult e. Kurt Seligmann
The Holy Books of Thelema e. Aleister Crowley
The Key of Solomon (Clavicula Salomonis) e. S. Liddell MacGregor (edited by)
The Little Giant Encyclopedia of Runes e. Sirona Knight
The Magick of Thelema e. Lon Milo Duquette
The Magickal Household e. Scott Cunningham
The Meaning of Witchcraft e. Gerald B. Gardner
The Pagan Book of Living and Dying e. Starhawk
The Philosopher's Stone e. Israel Regardie
The Spiral Dance, a Rebirth of the Ancient Religion of the Great Goddess, special 20th anniversary edition e. Starhawk
The Triumph of the Moon : A History of Modern Pagan Witchcraft e. Ronald Hutton
The Witch-Cult in Western Europe: A Study in Anthropology e. Margaret Alice Murray
The Witches' God e. Janet & Stewart Farrar
The Witches' Goddess e. Janet & Stewart Farrar
To Light a Sacred Flame e. Silver Ravenwolf
To Ride a Silver Broomstick e. Silver Ravenwolf
To Stir a Magick Cauldron e. Silver Ravenwolf
Wheels of Life, a Users Guide to the Chakra System e. Anodea Judith, Ph.D.
Wicca 333: Advanced Topics in Wiccan Belief e. Kaatryn MacMorgan-Douglas
Wicca in the Kitchen e. Scott Cunningham
Wicca, a Guide for the Solitary Practitioner e. Scott Cunningham
Wiccan Ministries Manual: Guide for Priests and Priestesses e. Kevin
Wiccan Roots: Gerald Gardner and the Modern Witchcraft Revival e. Philip Heselton
Witchcraft Today e. Gerald B. Gardner
Witchcraft for Tomorrow e. Doreen Valiente
Witches & warlocks e. Philip W. Sergeant


BÓKAGAGNRÝNI LUNA MAAT

Partur I:

Advanced Candle Magick og Practical Candle Burning Rituals, e. Raymond Buckland

Þessar bækur fara saman og eru eiginlega bara með smá grunn-upplýsingum um hvernig á að undirbúa kertagaldur og eru svo með tilbúnar athafnir handa þér. Mér fannst tilbúnu athafnirnar ekki nýtast mér sérlega vel af því að ég er ekki svo hrifin af svoleiðis og finnst ég ekki tengjast því vel. Ég notaði þær helst til þess að byggja eitthvað á með svona "personal flavor" og til að fá hugmyndir um hvernig ég vildi gera hlutina þegar ég stundaði svona galdra. Þær eru mjööög líkar, bara fleiri nýjar athafnir í "advanced" bókinni, sem er nú alls ekkert meira "advance" en hin eða þá að nokkru leyti.


Music & Worship in Pagan & Christian Antiquity, e. Johannes Quasten

Mjög fróðleg bók! Ég lærði heilmikið af henni. Hún er að vísu mjög þurr og erfitt að klóra sig í gegnum hana, enda er hún rituð af háskólaprófessor fyrir háskólafólk, en alveg þess virði, sérstaklega af því þetta eru áreiðanlegar upplýsingar en ekki einhver fantasíuveröld. Ef þig langar að vita hvernig hljóðfæri og tónlist voru notuð í heiðnum athöfnum, til hvers bjallan var, trommurnar o.s.frv. að þá er þetta góð bók. Ég er reyndar að klára master í klassískri tónlist þannig að ég hef sérstakan áhuga á svona löguðu og smá svona tónlistarnörd.


Progressive Witchcraft, e. Janet Farrar og Gavin Bone

Æðisleg bók um hvernig þetta allt hófst, hvernig galdraiðkun og Wicca hafa þróast, hvernig þau telja að hlutirnir myndu verða og hvað þeim finnst um þetta allt saman. Ég fékk a.m.k. heilmikið út úr henni og ætla að lesa hana aftur.


Singing Bowls: A Practical Handbook of Instruction and Use, e. Eva Rudy Jansen

Mjög sniðug bók ef þú vilt læra að nota tíbetsku skálina þína rétt. Ég á svoleiðis og vissi ekki mikið um þessar skálar og bókin nýttist mér ágætlega.


A Handbook for Wiccan Clergy, e. Kevin Gardner

Fyrsta bók sinnar tegundar! Skrifuð af kennaranum mínum, 3. degree High Priest í Celtic Wicca Coven, með nær 50 ára reynslu í galdraiðkunum og Wicca. Þetta er bók um skyldur presta og meypresta í Wicca, leiðbeiningar um hvernig best er að höndla ráðgjöf og sálarhjálp, ásamt kennslu og ýmsum athafnir eins og brúðkaup og jarðarfarir.


Covencraft, e. Amber K

Ef þig langar til þess að stofna sveim að þá er þessi bók með mjög praktískar upplýsingar fyrir þig um hvernig hægt er að hafa reglurnar, skipta niður verkum, takast á við vandamál, hvers konar "starfsemi" sveimurinn á að hafa o.s.frv. Hún er með alls konar hugmyndir. Það er hægt að fylgja þeim öllum og gera þetta voða flókið eða bara velja sér hitt og þetta sem manni finnst passa. Ég hef reyndar aldrei þurft að nota hana, ég fékk hana bara ódýrt second hand.


Dancing with Dragons, e. D. J. Conway

Ég keypti þessa á einhverju unglingaflippi fyrir löngu síðan og dauðsé eftir því. Ég fíla engan veginn hvernig hún vinnur með þetta og þetta hefur ekki nýst mér neitt. Hún er með einhverja svona semi-ceremonial leið til þess að vinna með svokallaða dreka-anda, þar sem þú ákallar þá og lætur þá gera hluti fyrir þig. Mér fannst þetta allt frekar tilgangslaust.


Draumabókin, e. Bíbí Gunnarsdóttir

Eldgömul bók um draumaráðningar. Það er ekkert allt of mikið í henni og það hefur aldrei passað neitt sérstaklega vel við draumana mína.


Drawing Down the Moon, e. Margot Adler

Löng og þurr bók og ekki endilega neitt sérlega skemmtileg aflestrar en engu að síður mjög upplýsandi. Þó að sumu leyti sé hún eilítið úrelt að þá er alveg þess virði að lesa hana. Hún fjallar um endurvakningu heiðninnar og Wicca og hefur bæði greinar um það ásamt viðtöl við hitt og þetta fólk sem er í þessu.


Drumming the Spirit to Life, e. Russell Buddy Helm

Diskurinn sem fylgir bókinni er æðislegur. Það eru 8 lög, 1-6 með trommuslætti eingöngu og seinustu tvö reyndar frekar glötuð tilraun til að tengja trommusláttinn við eitthvað 70's popp. Bókin sjálf er svosum upplýsandi um hvernig trommur hafa verið notaðar í gegnum tíðina og kennir þér þrjár grunn-aðferðir við að nota trommur, en ég vildi að það hefði verið meira af því og minna bull um hvað höfundurinn hefur verið að gera í lífinu. Þessi 6 lög sem ég fíla á disknum hafa nýst mér í ritúölum og svoleiðis og þessar þrjár aðferðir við að slá á trommurnar hafa nýst mér vel. En fyrir utan það fékk ég ekki mikið út úr þessari bók og það eru eflaust einhverjar aðrar sem geta nýst manni betur.


Earth, Air, Fire & Water og Earth Power, e. Scott Cunningham

Ég ætla að fjalla um þessar báðar í einu af því þær fara eiginlega saman. Önnur er framhald af hinni. Þær eru blanda af svona folk-like göldrum og einhverju instant fluffy dóti. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þær (keypti báðar í einu af Amazon) af því ég hélt þær myndu innihalda eitthvað af upplýsingum um elemental verur og vinnu með þær og orku jarðarinnar en það var nákvæmlega ekki neitt svoleiðis og ég skil það einfaldlega ekki. Þetta eru í rauninni bara einhverjar tilbúnar uppskriftir (sem nota steina eða mold eða álíka) sem mig hefur aldrei langað til þess að nota. Það er ekki gert ráð fyrir að maður sé að leggja mikið í þetta hérna. Hann fer nákvæmlega ekkert í það hvernig þú átt að láta galdur virka, orkuvinnu, hugarástand o.s.frv., sem mér finnst mikill mínus. Ég kunni það að vísu allt, en ég skil ekki hvers vegna verið er að gefa út einhverja galdrabók með uppskriftum ef ekki á að kenna fólki hvernig á að nota þær. Kannski kann hann það ekki sjálfur eða gerir ráð fyrir að fólk kunni það (þó hann hafi í rauninni ekki kennt það í neinni af bókunum sínum). Ef þér finnst einfaldar galdrauppskriftir sem notast við eitthvað úr náttúrunni spennandi að þá er þetta kannski ágæt bók fyrir þig.


The Element Encyclopedia of 5000 Spells, the ultimate reference book for the magical arts, e. Judika Illes

Ég keypti þessa bók nú reyndar bara til gamans, af því hún er safn af alls konar upplýsingum héðan og þaðan úr heiminum, úr þjóðsögum o.fl., þannig að það er gaman að sjá hvernig sögurnar um aðferðirnar eru mismunandi á milli þjóðerna. Þetta er skipt niður í kafla eftir tilgangi galdranna, þannig að í hverjum kafla færðu smá upplýsingar og sögu um hvert og síðan mismunandi galdrauppskriftir héðan og þaðan. Ef þér finnst gaman að nota svona uppskriftabækur að þá er þetta eflaust skemmtilegt, en fyrir mitt leyti að þá finnst mér allar svoleiðis frekar fluffy. Þessi bók fer ekki frekar í vinnuna á bak við galdrana frekar en bækurnar eftir Cunningham og ég tek hana ekki alvarlega. Fyrir mér var þessi bók upplýsandi á sama hátt og að lesa um að fólk fór með pater noster (faðir vorið á latínu) aftur á bak í gamla daga til þess að "galdra", svona sniðug "anecdotes" í rauninni.


Encyclopedia of Magickal Herbs, e. Scott Cunningham

Teiknaðar myndir af jurtunum og upplýsingar um hvernig þær voru notaðar í galdra í den, that's it. Getur í rauninni ekki notað þetta án Plöntuhandbókarinnar eða einhvers álíka. Segir ekkert um hvernig á að geyma þær eða finna þær og svoleiðis. Ekki endilega alltaf mjög raunsæ heldur með sumar jurtirnar, sem eru kannski mjög dýrar og/eða sjaldgæfar. Annars get ég svosum ekkert sagt um gæði upplýsinganna þar sem ég veit ekki alveg hvernig hann finnur allt þetta um jurtirnar. Þar sem ég veit ekki betur hef ég notað þessar upplýsingar til að velja mér reykelsi eða þurrkaðar jurtir og svoleiðis.


Advanced Wicca, Exploring Deeper Levels of Spiritual Skills and Masterful Magick, e. Patricia Telesco

Þessi bók fjallar ekkert um trúna Wicca, siðfræði, sögu eða neitt svoleiðis. Ef þú ert kominn með ógeð á að lesa um fleiri aðferðir við að leggja hring eða correspondences eða svona basic dót að þá á þessi bók eflaust eftir að eiga ágætlega við þig. Hún er kannski ekki fyrir sérlega advanced fólk, eins og titillinn segir, en a.m.k. eru þetta ekki sömu gömlu tuggurnar og þetta er ekki þetta týpíska Wicca 101. Hún talar um draumavinnu fyrir hópa, pathworking, trancework, vinnu með elemental verur, að búa til verndargripi og svoleiðis og er með ýmsar hugleiðslur og visualizations. Ef þú veist lítið sem ekkert um Wicca og galdra að þá ertu ekki að fara að kaupa þér þessa bók - og ef þú hefur mikla praktíska reynslu á bak við þig ertu það ekki heldur (kannt þetta örugglega flest eða allt). Þú þarft samt að kunna að leggja hring, nota verndaraðferðir, hugleiðslu og að tengja þig í astral til þess að geta nota þessa bók, þannig að þetta er kannski meira svona borderline intermediate bók.


Encyclopedia of the Strange, Mystical and Unexplained, e. Rosemary Ellen Guiley

Þessi bók er svona almennt uppflettirit um dulspekiheiminn, með upplýsingar um dulspekilega hluti, leynifélög, merkilegt fólk og svoleiðis. Það er mjög lítið um Wicca í þessu, enda ertu ekki að fara að finna margt af þessum upplýsingum í svoleiðis encyclopedias. Þetta er byggt á ágætum heimildum, þannig að manni finnst maður geta treyst því sem þarna stendur. Ég fletti oft upp í henni.


Encyclopedia of Wicca & Witchcraft, e. Raven Grimassi

Þegar þú lest þessa alfræðiorðabók að þá verðurðu að muna að Grimassi er svolítið controversial karakter sem trúir ekki sagnfræðingnum Ronald Hutton eða rannsóknum Philip Hesiltons um uppruna nútíma galdraiðkunar og Wicca. Hann stundar Italian Witchcraft en það er víst eitthvað umdeilt hversu "löggiltur" Strega hann er hef ég heyrt, en ég þori nú ekki að fara með það þar sem ég er ekki Strega sjálf. Að öðru leyti vinnur hann bækurnar sínar vel og nýtur ágætrar virðingar sem höfundur. Þessi bók er fínt uppflettirit ef þú hefur þetta í huga.


Exploring Spellcraft, e. Gerina Dunwich

Þessi bók fer ítarlega í það hvernig þú setur saman galdur, allar correspondences, hvaða tímasetning er best fyrir hvað o.s.fr. o.s.frv. Þrátt fyrir hversu lítil bókin er miðað við suma doðranta þarna úti að þá er ekkert auka bull í henni. Það er bara akkúrat það sem maður þarf til að setja saman folk-like galdur af þeirri gerð sem virðist vera í tísku í Wicca. Það er svo þitt að meta hversu fluffy þér finnst það eða ekki.


A Complete Guide to Fairies and Magical Beings, Cassandra Eason

Þessi er með lista yfir flestar týpurnar af því sem segir í titlinum og ágætt að fletta upp hvað er hvað og úr hvaða menningarsamfélagi það kemur og svoleiðis. Nálgunin er svolítið keltnesk finnst mér. Ufram það, t.d. hvað varðar vinnu með þessar verur, finnst mér bókin allverulega fluffy.


Fjölfræðibókin um spádóma og spásagnalist, e. Francis X. King

Þetta er svo sannarlega fjölfræðibók og gefur þér grunnupplýsingar um alls konar mismunandi spásagnaaðferðir og sögu þeirra. Þú færð að vita nóg til að geta prófað smávegis í hverju og haft gaman af þessu og vitað hvort þetta sé eitthvað sem þig langar að skoða frekar.



Partur II:


Heilun, orka – vitund – mannþroski, e. Anne Sophie Jörgensen og Jörgen Höher Ovesen

Mjög fín bók um nokkrar einfaldar aðferðir til heilunar og alveg frábært til að koma sér af stað. Það er farið í mismunandi líkamana okkar, áruna og orkustöðvarnar og hvernig er gott að vinna með þetta og manni kenndar ýmsar æfingar til að þjálfa sig.


Allt um jóga, e. Lucy Lidell, Narayani og Giris Rabinovitch

Mjög fín bók sem kennir þér basic jóga og meira til og fer yfir heilmargar stellingar og nokkrar stellingaraðir. Ég mæli þó ekki með því að nota hana án þess að hafa farið í jógatíma áður af því maður þarft oft leiðbeiningar um að gera æfingarnar rétt. Ef þú hefur farið í tíma að þá er þessi bók rosalega fín og á eftir að nýtast þér vel. Það er farið í meira en bara stellingar og þú færð smá vitneskju um heimspekina á bak við þetta. Þá er líka fjallað um jóga fyrir börn, óléttar konur og aldraða.


Hendur ljóssins, e. Barbara Ann Brennan

Mér finnst þessi bók algert æði. Það er farið eitthvað í vísindalegar kenningar á bak við heilun og síðan er mjög djúpt farið í hvernig hægt er að vinna með heilun, hvernig er hægt að greina fólk og leiðir til þess að lækna það. Ef þú getur klórað þig í gegnum þessa bók (af því hún getur stundum verið frekar þurr) að þá nýtist hún þér vel. Hún fæst bæði á ensku og íslensku. Mitt eintak er reyndar eitthvað gallað og mig vantar einhverjar myndir sem vísað er í. Ég veit ekki hvort það er málið með allar íslensku bækurnar en ég myndi a.m.k. athuga hvort það fylgi ekki örugglega allt með til öryggis.

The Herb Book, e. John Lust

Þessa bók keypti ég í Heilsuhúsinu á Laugavegi á sínum tíma. Þetta er svona uppflettirit og áherslan er aðallega á lækningagildi jurtanna. Það er eitthvað farið í sögu jurtanna, hvernig þær voru notaðar áður fyrr, og stundum einhverjar tilvísanir í galdra, en aðallega talað um lækningamátt þeirra. Það eru teiknaðar myndir af hverri jurt og talað um hvar þær er helst að finna.


The History of Magic and the Occult, e. Kurt Seligmann

Þessi bók er ekkert fluff og fer í hvernig galdur var notaður í fornum menningarsamfélögum, eins og Mesópótamíu, Persíu, Egyptalandi, Grikklandi og af Gyðingum. Það er líka farið í Gnosticism, Róm, Alkemíu, o.s.frv. o.s.frv. allt fram á 18. öld. Maður er algerlega laus við nýaldarbullið hérna. Reyndar er hún frekar þurr, en ég meina, það er ekki verið að eltast við einhverja tískubólu með þessari bók. Hún er skrifuð í akademískum stíl og alveg þess virði að svitna yfir ef manni leiðist svoleiðis.


Buckland's Complete Book of Witchcraft , e. Raymond Buckland

Ef uppáhalds bækurnar þínar eru eftir $ilver Ravenwolf og Scott Cunningham að þá er þessi bók eflaust ekki fyrir þig. Buckland lærði af sjálfum Garnder og þessi bók er því frekar "gardnerísk" í eðli sínu. Satt að segja er hún samt meira Seax Wicca, sem ef hefðin sem Buckland stofnaði. Mörgum finnst Buckland ýja að því að það sem hann talar um í bókinni sé "eina rétta leiðin", en hann segir þó sjálfur að það sé ekkert endilega þannig, að svona hafi hann einfaldlega lært þetta og þess vegna skrifar hann um það. Maður verður líka að hafa í huga að þar sem hann er af Garnder-kynslóðinni trúði hann því að þessi galdrahefði væri ævaforn að uppruna. Á þeim tíma sem Gardner kom fram voru nefnilega kenningar Murray's og Leland's ennþá mjög vinsælar og ekki jafnmiklar sagnfræðilegar upplýsingar á reiðu og í dag. Buckland var einnig harður á því að ásakanir um að Gardner hefði bara fundið upp á öllu þessu sjálfur væru fáránlegar. Eins og Gardner talar hann um nornir almennt og nefnir ekki Wicca sérstaklega. Í dag er fólk hins vegar á þeirri skoðun að það séu alls ekki allar nornir sem stunda þessa hefð. Þessi bók er ekki "complete" eins og hann heldur fram og hún er satt að segja frekar þurr og leiðinleg og mér hefur aldrei tekist að lesa hana alla í gegn í einu, hef ekki meikað meira en búta hér og þar í hvert sinn. Það er lítið sem ekkert af trúarlegum upplýsingum þarna. Það er mikið af myndum og spurningum og alls konar ef maður skyldi hafa gaman af því. Sumum finnst hjálpa að sjá mynd af hlutunum til að þeir átti sig betur á því hvernig gera á hlutina. En allavegna, ef maður hefur ofangreint í huga þegar maður les hana og tekur ekki sagnfræðilegar fullyrðingar alvarlega er eflaust ýmislegt þarna sem maður getur skoðað og nýtt sér. Hins vegar stórefast ég um það að nokkur manneskja í dag fara í gegnum þessa bók eins og einhvern kúrs í göldrum eða Wicca. Til þess eru aðrar bækur eflaust betri.


Partur III:


Wicca, a Guide for the Solitary Practitioner, e. Scott Cunningham

Mjög góð sem byrjendabók. Ef þú veist ekki alveg hvort þig langar til þess að verða Wiccan eða ekki og langar að fá góðar upplýsingar án þess þó að fara of djúpt og ítarlega strax er þetta bókin fyrir þig. Ef þú veist lítið um Wicca og hefur kannski bara lesið þér til á vefsíðum hingað til og vilt fá einhverja heildarmynd er þetta líka bókin fyrir þig. Ef þú nýr og veist varla hvar þú átt að byrja er þetta eflaust staðurinn. Hafðu það þó í huga að þetta eru einungis grunnupplýsingar og kannski frekar órökréttar þegar kemur að sögulegum staðhæfingum. Ef þú vilt demba þér út í Wicca af einhverri alvöru er þetta ekki nóg, en þetta er góð byrjun til að hjálpa þér af stað og til að gera sér grein fyrir hvað maður vill vita meira um og hvort maður virkilega hefur áhuga á þessu. Ég myndi mæla með þessu fyrir nýgræðinga, einfaldlega vegna þess að hún er stutt, auðlesanleg, þægileg og ódýr. Ef þú vilt síðan vita eitthvað um Wicca fyrir alvöru þarftu að stíga næsta skref og lesa aðra bók.


Reiki, e. Penelope Quest

Þetta er alveg frábær bók um reiki en nýtist þér kannski ekki almennilega fyrr en þú hefur farið á námskeið. Ef þú hefur ekki gert þér almennilega grein fyrir hvort þú vilt fara á námskeið eða ekki er þetta samt góð bók til að átta þig á því. Eftir að þú ferð munu verða upplýsingar þar sem þú skilur á nýjan hátt og aðrar sem þú einfaldlega tókst ekki eftir. Þetta fer yfir efnið fyrir Reiki I og Reiki II og örlítið um Reiki III. Þetta fjallar um sögu reiki og hvernig þú getur notað það. Þú lærir samt ekki sjálf reiki nema á námskeiðum vegna þess að þú þarft að gangast í gegnum ákveðnar vígslur til þess að fá aðgang að reiki orkunni.


Seasons of the Witch, Poetry and Songs to the Goddess, e. Patricia Monaghan

Þetta eru mörg skemmtileg ljóð af misjöfnum gæðum sem byggjast á upplifun höfundar af heiðni, göldrum og gyðjunni og var það ágætis lesning. Svo fylgir geisladiskur með upptökum af nokkrum lögum sem voru samin við einhver ljóðanna af öðrum nornum og heiðingjum. Ég get ekki sagt að sem prófessíónal tónlistarmaður að ég hafi kunnað að meta tónlistarleg gæði þeirra verka en það voru samt einhver tvö lög sem mér þótti skemmtileg. Umfram allt fannst mér gaman af að sjá hvernig aðrir heiðingjar vinna með trú sína á listrænan hátt og nýta sköpunargáfu sína í þágu gyðjunnar og ég er yfirleitt alltaf til í að styrkja svoleiðis vinnu.


The Crystal Bible, e. Judy Hall

Mér finnst þessi bók alveg hreint æðisleg og ég er alltaf að fletta upp í henni. Ég hef bara einu sinni ekk fundið stein í henni og það var cobalt, annars er allt þar sem mér gæti mögulega dottið í hug og fleira. Það eru upplýsingar um hvað steinarnir gera og lækna, hvernig maður getur notað þá, mismunandi eiginleika eftir litum og formi og jafnvel aðeins farið út í feng shui stundum. Ég mæli með henni fyrir alla sem vinna mikið með steina.



Stóra Draumaráðningabókin, e. Símon Jón Jóhannsson

Þetta er stórt og skemmtilegt safn af draumaráðningum sem ég gat notað mikið árum áður, en nú þegar ég er orðinn eldri og flóknari karakter sem vinn mikið spiritúalískt og í sjálfri mér hefur mér stundum þótt sem færslurnar séu heldur stuttar og ekki nógu djúpt í hlutina farið. Þegar mig dreymir um flókið andlegt ferli mitt og sjálfsvinnu, oft sem skilaboð frá mínu æðra sjálfi sem bendir mér á hvar mætti gera betur, eins fáránlega og það kann að hljóma, að þá nýtist mér betur síðan www.dreammoods.com. Mig dreymir ekki lengur svo "einfalda" drauma eins og á unglingsárunum sem segja mér hvar og hvernig ég hitti hitti næsta "draumaprinsinn". En vissulega nýtist þessi bók mjög vel fyrir margskonar drauma þó hún sé ekki mikið fyrir djúpar pælingar.


Tarot spilin, e. Kathleen McCormack

Þessa bók er best að vinna með Rider-Waite spilunum. Þegar ég notaði þau einu sinni fannst mér hún alveg hreint frábær en þegar ég skipti yfir í Spiral Tarot þá fannst mér merkingin ekki passa við þau, sem ég hugsa að sé frekar höfundi þeirra spila meira að kenna en höfundi þessarar bókar. Hún notar jú Rider-Waite spilin á myndunum í bókinni. Ég lærði margar lagnir í henni og upplýsingarnar nýttust mér gífurlega vel. Hún er kannski pínu "old-school" en það eru spilin líka.


Teen Witch, e. Silver Ravenwolf

Þetta er án efa sú alversta bók sem ég hef á ævi minni lesið um galdra. Öllu verra þykir mér að höfundur ætlar hana unglingum til lestrar en treystir þeim samt ekki til að segja þeim satt. Hinir svokölluðu "galdrar", eða kjánauppskriftir eins og ég kýs að kalla það, sem hún setur fram í bókinni eru algert grín. Ég hef gaman af að vísa í "Beach Sun Spell" eða hvað hann nú hét þar sem maður átti að teikna hring í sandinn, setja sólarolíu í miðjuna með sólgleraugu ofan á og þylja eitthvað í áttina við "sól, sól skín á mig, ský, ský burt með þig" þrisvar sinnum og endurtaka það á klukkutíma fresti þar til sólin færi að skína. Eru einhverjir fleiri en ég sem sjá eitthvað athugavert við þetta??? Hmm...! Svo er hún með spes kafla fyrir foreldra til að blíðka þá fyrir þessu og talar um það í upphafi bókarinnar að maður eigi alltaf að hlýða foreldrum sínum og ekki stunda þetta ef þeir leyfa það ekki. Svo í lok bókarinnar, þegar hún veit að mamma og pabbi nenna ekki að lesa lengur, segir hún að ef mamma og pabbi skilji ekki þrána til að galdra og leyfi unglingnum ekki að stunda þetta að þá sé allt í lagi að fara á bak við þau, Mamma $ilver sé til staðar og skilji allt. Þá talar hún um að kynlíf sé aldrei og hafi aldrei verið viðloðandi galdraiðkanir, sem er auðvitað ósatt. Það er samt ekki eitthvað sem unglingar eiga að stunda, enda um öflugar aðferðir að ræða sem óreyndir ráða engan veginn við og ætti helst ekki að nota nema fólk sé í sambandi og/eða báðir aðilar með mjög mikla reynslu á bak við sig. En það er of flókið til að fara eitthvað ítarlega út í þegar maður er bara að skrifa litla bókagagnrýni! Ég gæti haldið endalaust áfram um hvað þetta er glötuð bók. Ég hef sjaldan séð jafnmikið eftir peningunum mínum. Ég keypti hana á sínum tíma af því ég var 18-19 ára að setja upp vefsíðu á íslensku og hélt að það væri auðveldari enska til þess að þýða í þessari bók. Vissulega var þetta auðveldari enska en þetta var líka algert bull frá upphafi til enda. Skamm, skamm, $ilver! Það er ljótt að plata og græða á minni máttar!



Burt með verkina, e. Chris McLaughlin

Þetta er ágætis bók og létt og þægileg til aflestrar. Hún fjallar um hinar mismunandi aðfeðir óhefðbundinna lækninga og til hvers megi best að nota þær. Mér finnst hún fínt uppflettirit og gefur góðar upplýsingar um það sem er í boði hérna á Íslandi, því aðferðirnar í hennar eru einmitt á boðstólnum hér.


High Priestess - The Life & Times of Patricia Crowther, e. Patricia Crowther

Skemmtileg bók um líf og störf Patriciu Crowther. Fyrri hlutinn fjallar mikið um hvernig hún komst inn í Wicca, samband hennar við Gardner og líf hennar sem fræg norn sem kom fram í fjölmiðlum á þeim tíma sem hefðir Gardners spruttu fram í dagsljósið. Mér fannst það mjög áhugaverð lesning. Seinni hlutinn er langdregnari og meira um það sem gerðist í hennar lífi, sem var ekkert endilega svo merkilegt þannig í tengslum við Wicca en samt áhugaverð lesning. Manni fannst gaman að sjá að á margan hátt er þessi manneskja ekki svo ólík manni sjálfum og hlutirnir sem hún var og hefur verið að díla við, bæði hjá sjálfri sér og varðandi fólk í kringum hana, í sambandi við "the Craft" eins og hún kallar það, eru að miklu leyti þeir sömu og eru í gangi hjá fólki í dag. Ég kannast a.m.k. sjálf við mjög margt af þessu. Það er líka gaman að lesa um hvernig var að vera uppi á þessum tíma þegar þetta var allt svo nýtt og bera það saman við þegar þetta var að byrja á Íslandi, því við upplifðum stundum svipaða hluti. Ég vil þó ekki setja okkur á háan hest og meina að það sé sambærilegt við það að vera í tengslum við Gerald Gardner og sveiminn hans og vera ein af þeim sem mótaði hefðina, því það þótti mér sérstaklega gaman og merkilegt að lesa um. Patricia Crowther hefur líka mjög ákveðnar skoðanir á hlutunum og er ekkert að fela þær. Ég mæli með henni fyrir alla sem vilja kynna sér sögu og skoðanir eins úr "upprunalega hópnum".
Last edited by lunamaat on Tue May 13, 2008 5:30 pm, edited 6 times in total.
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby 93 Kisur on Fri Nov 30, 2007 1:31 pm

Hvar fékkstu ,,Advanced Wicca, Exploring Deeper Levels of Spiritual Skills and Masterful Magick" e. Patricia Telesco ?
V.V.V.V.V.
(Vi Veri Veniversum Vivus Vici)
By the Power of the Truth, I, while living, have conquered the universe.
-J. Faust
User avatar
93 Kisur
Verðandi Norn
 
Posts: 55
Joined: Sun Oct 28, 2007 1:23 am
Location: Ísland

Postby lunamaat on Fri Nov 30, 2007 7:18 pm

Ég fékk Advanced Wicca á Amazon.com :)
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Noctiluca on Sat Dec 01, 2007 8:44 pm

Úff ég væri til í að komast í þetta safn! hehehe :lol:

En já ég er búin að gera þetta að sticky og það væri frábært að heyra fleiri gagnrýnir, jafnvel frá fleiri notendum. Svo ef fleiri en einn notendur gera gagnrýni um sömu bók, frábært! Ég get t.d. hagrætt því þannig að ég skelli inn í upprunalega póstinn öllum hinum gagnrýnunum.

Frábært framtak og gaman að lesa þetta :-)
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby lunamaat on Sun Dec 02, 2007 5:34 am

Hehehe, Mystira, þú getur örugglega fengið að kíkja á safnið einhvern tímann. Reyndar eru einhverjar af þessum bókum útprentaðar af netinu, en langflestar eru keyptar. Ég er með svo mikinn fróðleiksþorsta að ég get ekki hætt að kaupa mér bækur, þetta er alveg skelfilegt sko.

P.S. Ég bætti við gagnrýni í upprunalega póstinn. Ákvað að það væri líklega bara langþægilegast þannig.
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Noctiluca on Sun Dec 02, 2007 12:32 pm

Lunamaat, þekki þennan fróðleiksþorsta. Ef ég hefði efni þá væri ég eflaust búin að kaupa mjög margar bækur en þær flestar sem ég les fæ ég lánaðar eða einmitt á netinu. Á nokkrar keyptar að sjálfsögðu.. Bækur eru uppáhaldið mitt í öllum heiminum :P :P
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby lunamaat on Sun Dec 02, 2007 3:53 pm

Uss, ég á ekkert efni á þessu, hehehehehehh, en ég geri þetta nú samt 8) Það er held ég bara spurning um að herða sultarólina og gera þetta smám saman. Ég hef keypt þetta rólega í 9 ár, þannig að meðtalali er þetta tæplega ein bók á mánuði. Það gefur manni líka tíma til að lesa hverja bók fyrir sig.
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Noctiluca on Mon Dec 10, 2007 11:26 am

*Situr og bíður spennt eftir bókunum sínum sem hún var að panta af Amazon um daginn* :lol: :lol:
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby lunamaat on Tue Dec 11, 2007 1:40 pm

Heheh :lol:
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Noctiluca on Mon Dec 17, 2007 10:46 pm

Jæja, bækurnar komnar í hús :) Ég reyndar ætla að geyma tvær þeirra fyrir næsta ár, eða allavega eftir jól, en er byrjuð á einni :) Þær eru eftirfarandi:

The Way of The Shaman - Michael Harner

The Circle Within - Dianne Sylvan

Gardnerian Book of Shadows - Athena Gardner

Er byrjuð að lesa Shaman bókina, svo les ég Sylvan.. Og hin er í raun bara svona til að kynna mér Gardneríska hefð betur og fletta upp í henni ef ég ætla mér að nota eitthvað úr henni.

Ég á pottþétt eftir að skrifa gagnrýni um allar, sem ég skelli svo hér inn þegar ég klára að lesa þær :D
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby lunamaat on Mon May 05, 2008 1:26 am

Var að bæta inn smá gagnrýni og setti líka upp lista yfir bækurnar.
Luna Maat
~pagan~witch~healer~
*Spiritual & energy healing
*Reiki
*Cranio Sacral Therapy (CST I)
*Magic
*Wicca/Neo-Wicca

Netfang: lunamaat (hjá) yahoo.com
User avatar
lunamaat
Norn
 
Posts: 114
Joined: Wed Aug 15, 2007 11:12 am
Location: Reykjavík

Postby Noctiluca on Wed May 07, 2008 4:30 am

Æðislegt framtak og frábær gagnrýni, mjög fróðlegt og hjálpsamt, takk kærlega fyrir þetta lunamaat! :D
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland


Return to Bækur um Wicca

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron