Welcome
Welcome to <strong>Wicca á Íslandi</strong>.

You are currently viewing our boards as a guest, which gives you limited access to view most discussions and access our other features. By joining our free community, you will have access to post topics, communicate privately with other members (PM), respond to polls, upload content, and access many other special features. Registration is fast, simple, and absolutely free, so please, <a href="/profile.php?mode=register">join our community today</a>!

Að kaupa sér Tarot-spil

Hér má ræða allt sem viðkemur Tarot spilum, notkun þeirra og Tarot-lögnum, o.fl.

Moderator: Noctiluca

Að kaupa sér Tarot-spil

Postby Noctiluca on Sun Aug 12, 2007 10:14 pm

Þetta umræðuefni er greinilega eitthvað sem nokkrir hér hafa áhuga á að læra meira um og þess vegna ætla ég að skrifa hér nokkur "tips" um að kaupa Tarot spil:

1) Tarot spil á Íslandi er hægt að nálgast í: Gjafir Jarðar, Spilabúð Magna (á Laugaveginum), Betra Líf og Nornabúðinni. Þetta eru þær sem ég er hundrað prósent viss um, svo eru eflaust fleiri búðir, sumar bókabúðir til dæmis.

2) Þegar kaupa á Tarot spil er mjög sniðugt að annað hvort fá að skoða stokkinn í búðinni, eða hafa skoðað hann áður. Flest allar búðir leyfa manni að skoða stokkinn (Betra Líf er með sýnisstokka og Nornabúðin opnar stokkinn fyrir mann sem maður vill skoða, þó svo að maður kaupi hann ekki).

3) Þegar þú ert að skoða stokkinn, reyndu þá að finna einhverja tengingu við stokkinn og taktu eftir hvernig þér líður með hann í höndunum, bæði líkamlega og andlega:
LÍKAMLEGA: Eru spilin of stór til að meðhöndla? Er þægilegt að halda á þeim í höndunum eða er það erfitt? Eru þau of lítil?
ANDLEGA: Finnurðu einhverja tengingu gagnvart spilunum? Hvernig tilfinningu færðu frá myndunum? Ferðu strax að finna einhverjar tilfinningar þegar þú horfir á myndirnar eða finnurðu ekki neitt?

Ég vona að þetta geti hjálpað einhverjum að finna Tarot spil :D
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby MiseriaCantare on Mon Aug 13, 2007 6:12 pm

ég keypti mín í betra líf og ég var ekki búin að skoða allan stokkinn, bara thingyið í möppunni, þannig ég held ég hafi verið smá heppin, ég elska spilin mín:P
(man ekki hvað þau heita, ég sökka í lífinu:P)

Næst þegar ég kaupi mér spil ætla ég samt að kynna mér betur, ég skoðaði bara í betra líf og ekki neinstaðar annarsstaðar þannig já... kannski hefðu verið spil í annari búð sem hefðu hentað mér betur... :O
But never with the melody
User avatar
MiseriaCantare
Nemi
 
Posts: 37
Joined: Wed Aug 08, 2007 2:16 pm

Postby Bastet on Wed Aug 15, 2007 3:26 am

veistu, ég spái mjög mikið í Tarot, mamma kenndi mér og amma kenndi henni.
að spá í tarot spil eru ekki á allra færi og það þarf að koma sér upp ákveðinni kunnáttu í þeim málum.
allavega, hafiði aldrei heyrt um það að maður á ekki að kaupa sín tarotspil sjálfur? að maður eigi að fá þau að gjöf?
"the Lady with the Red Clothes"
Bastet
Vígslunemi
 
Posts: 7
Joined: Wed Aug 15, 2007 3:13 am
Location: hér og þar

Postby Noctiluca on Wed Aug 15, 2007 9:15 am

Jú, Bastet - ég hef heyrt um þetta, og mín fyrstu Tarot spil voru gjöf, en til þess að læra á spilin þarftu jú að eiga spil til þess að skoða.

Ég spái líka í Tarot spil og ég fæ alveg jafn miklan árangur með spilum sem ég kaupi sjálf.

Hver veit betur en ég hvernig spil eiga best við mig?

Þetta er mjög útbreidd skoðun, en þetta er ekkert lögmál sem er algilt. Mjög margir sem spá í Tarot hafa keypt sín eigin spil og gengur bara mjög vel með það. Allavega mér :)
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

amm

Postby Libra4 on Thu Sep 27, 2007 11:32 pm

Ég er eiginlega svona sammála Baset, mér hefur alltaf fundist maður eiga fá þau að gjöf.

En það finnst mér bara gilda um fyrsta stokkinn. Því ég meina maður getur ekkert verið að bíða þangað til fólk gefur manni stokk... gengur ekki...

Þannig að fyrsti stokkur er fínn sem gjöf, næsti stokkur eftirá er bara fyrir mann sjálfann að kaupa:)

Það er mín skoðun:)
User avatar
Libra4
Steina-Norn
 
Posts: 77
Joined: Thu Sep 27, 2007 1:33 pm
Location: Iceland

Postby Noctiluca on Thu Oct 11, 2007 9:37 am

Já.. Sko ég sé alveg pointið svo sem á bak við þetta, en málið er nú bara það að ef mig langar til að læra á Tarot spil og pæla í þeim (ekki endilega spá með þau) þá er ég ekki að fara að bíða alla ævi eftir að ég fæ þau í gjöf.. :P Ég gæti náttúrulega sagt við einhvern "mig langar í Tarot spil í jólagjöf" en þá er það alveg það sama og að kaupa þau sjálf.

Tarot spil hafa mjög mismunandi notkunargildi, til dæmis nota ég þau mjög mikið í galdra. Ég finn þá t.d. það spil sem tengist galdrinum sem ég er að gera, og nota það í galdurinn.

Kærastinn minn sem dæmi, hann á sín eigin Tarot spil (Thoth) en hann spáir ekki í þau. Hann er að nota þau sem tæki til að víkka skilning sinn á dulspeki og göldrum, og er að nota þau jafnhliða rúnunum til þess að reyna að sjá einhverja tengingu þar á milli. Hann keypti sín alveg sjálfur (en var reyndar lengi að því hehe) en þau nýtast honum samt vel.

Ég er ekki ein af þeim sem heldur að það sé einhver heilagur hæfileiki að spá í Tarot sem erfist og maður verði að fá stokk að gjöf áður en maður byrjar. Að mínu mati er þetta hæfileiki sem má þjálfa upp, líkt og hugleiðsla og galdrar þarfnast æfingu og þjálfun. Hins vegar þá er ég sammála Bastet að því leyti að það er ekki á allra færi að gera þetta, en það er líka af því að það eru svo margir lokaðir fyrir þessu, en ég tel að manneskja sem er lokuð geti opnast og öðlast hæfni í þessum málum. En svo eru sumir sem munu aldrei opnast...

Skiljiði mig? :lol:
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby Libra4 on Mon Oct 29, 2007 9:46 am

Tja, maður þarf nú samt alltaf að fara með Tarotspil varlega og höndla þau með "aðgát" ..

En hinsvegar eru ekki allir sem geta þetta og ekki öllum sem eru ætlað að gera þetta... persónulega trúi ég að ef þetta gengur í ættir og áfram að maður eigi að fá þetta helst að gjöf en auðvitað hægt að kaupa sjálf/ur.
Ég fékk mín spil frá móður minni sem er miðill og þetta gengur í ættir og ég get sagt að ég hef upplifað marga spennandi hluti og ótrúlegustu hluti sem ég veit um... hluti sem fáir myndu trúa þegar þeir lenda í þeim ... Hinsvegar ég er alin upp við þetta, svo fyrir mér var þetta fullkomnlega eðlilegt... og er einhverneginn enn þann dag í dag.. :)

En ef fólk vill ýta undir sinn Tarot skilning sjálfur að eigin vali og læra þetta sjálf/ur þá er það alveg æðislegt!
Því þetta er ekkert lítið sem fólk er að taka á sig, og já ef maður er nógu opinn fyrir þessu þá getur maður iðkað þetta og ýtt undir andlegu hlið sína... Maður þarf bara vera ákveðin og vera með viljann
User avatar
Libra4
Steina-Norn
 
Posts: 77
Joined: Thu Sep 27, 2007 1:33 pm
Location: Iceland

Postby Noctiluca on Thu Nov 22, 2007 9:46 am

Raunin er samt sú að ef það væri bara hægt að lesa í spil sem maður hafi fengið að gjöf þá væru afskaplega fáir sem kynnu að lesa í Tarot spil...

Og ég hef persónulega alltaf fengið rosalega góðan árangur með mínum spilum og margoft spáð fyrir fólki eða lesið í þau fyrir sjálfa mig, og það hefur alltaf reynst rétt og virkað mjög vel. En það verður nú að segjast að ég fékk mín fyrstu spil frá mömmu minni, en hún hafði sko ekki snert þau, hún var ekkert í svona málum. Og ég hef fengið jafn mikinn árangur með þeim spilum sem ég sjálf hef keypt.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby 93 Kisur on Mon Nov 26, 2007 11:40 pm

Skrítinn hlutur kom fyrir mig um daginn. Í byrjun þessa árs keypti ég mér ný Tarrot spil. Ég átti Rider Waite spilin fyrir (sem systir mín gaf mér), en langaði í einhver sem ég valdi mér sjálf.
Svo fyrir nokkrum vikum ætlaði ég að kíkja aðeins í spilin mín eftir allt of langa fjarveru frá þeim en ég lagði eina lögn og leið bara mjög illa allan tímann. Mér fundust spilin ógeðsleg og það eina sem ég gat hugsað um var að henda þeim. Ég gerði það þó ekki, en er ennþá að velta þessu fyrir mér.
Hvað finnst ykkur? Ætti ég að ganga bara frá þeim og láta þau liggja á meðan ég nota gömlu spilin í smá tíma eða ætti ég bara að gera eins og mér finnst eins og einhver sé að segja mér að gera og henda þeim bara í ruslið? :?
V.V.V.V.V.
(Vi Veri Veniversum Vivus Vici)
By the Power of the Truth, I, while living, have conquered the universe.
-J. Faust
User avatar
93 Kisur
Verðandi Norn
 
Posts: 55
Joined: Sun Oct 28, 2007 1:23 am
Location: Ísland

Postby Noctiluca on Tue Nov 27, 2007 8:50 am

Hæ,

ég myndi gera það sem tilfinningin segir. Hins vegar er það kannski of mikil sóun að henda þeim beinlínis í ruslið, getur t.d. gefið öðrum þau eða bara sett þau í geymslu og kíkt á þau seinna meir.

Ef þau virka ekki fyrir þig og þér líður beinlínis illa þegar þú leggur þau, þá muntu aldrei geta spáð í þau almennilega, þú átt greinilega ekki að nota þessi spil. Ég myndi láta þau vera, gefa þau eða geyma þau.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby 93 Kisur on Fri Nov 30, 2007 1:32 pm

Já, veistu, ég held að það gæti bara verið góð hugmynd að geyma þau þar til ég finn einhvern sem ég vil bara gefa þau. :)
V.V.V.V.V.
(Vi Veri Veniversum Vivus Vici)
By the Power of the Truth, I, while living, have conquered the universe.
-J. Faust
User avatar
93 Kisur
Verðandi Norn
 
Posts: 55
Joined: Sun Oct 28, 2007 1:23 am
Location: Ísland

Postby WolfSpirit on Wed Feb 27, 2008 5:54 pm

hehe mig hefur alltaf langað til þess að læra á tarot :P Spurning hvort maður kíki ekki á þetta ;)
WolfSpirit
Verðandi Norn
 
Posts: 50
Joined: Sun Jul 22, 2007 6:05 pm
Location: Hafnarfjörður

Postby Noctiluca on Wed Feb 27, 2008 6:23 pm

Endilega, það er alveg svakalegt hvað þessi spil geta gert. Áttu stokk?
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Postby WolfSpirit on Wed Feb 27, 2008 7:13 pm

Nei =/ Langar í :D
WolfSpirit
Verðandi Norn
 
Posts: 50
Joined: Sun Jul 22, 2007 6:05 pm
Location: Hafnarfjörður

Postby Noctiluca on Wed Feb 27, 2008 7:32 pm

Ókei :) Myndi skoða marga stokka og svona áður en þú kaupir.. Reyna að finna stokk sem hentar þér, myndrænt séð, stærðarlega séð og andlega séð að sjálfsögðu.. Svo ef þú hefur einhverjar spurningar, endileg spyrðu hér á Tarot.
Kveðjur,
Alexandra (Vefstjóri).
"Pain asks not to be worshiped, but to be faced, lived through and learned from."
User avatar
Noctiluca
Vefstjóri
 
Posts: 428
Joined: Thu Jun 28, 2007 6:36 pm
Location: Reykjavík, Ísland

Next

Return to Tarot-spil

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 0 guests

cron